Í tilkynningu frá lögreglunni segir að þeir verði í gæsluvarðhaldi næstu fjórar vikur, eða til 28. október. Málið varðar innflutning á fimm kílóum af amfetamíni sem komu með hraðsendingu frá Þýskalandi.
„Þeir eru jafnframt grunaðir um að hafa veitt viðtöku fleiri fíkniefnasendingum undanfarnar vikur og er það einnig til rannsóknar hjá lögreglu. Við húsleitir fundust fíkniefni sem talið er að tengist eldri sendingum, m.a. 1 kg af ketamíni. Fjórmenningarnir voru allir handteknir í Reykjavík og voru í fyrstu úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna,“ segir í tilkynningunni.
Lögregla gerir ráð fyrir að rannsókn á málinu ljúki fljótlega og málið verði í framhaldinu sent til embættis héraðssaksóknara.