Unglingur í Laugardal var bundinn af samnemendum sínum og skilinn eftir í kjallara fjölbýlishúss í september. Límband mun einnig hafa verið sett yfir munn hans.Mannlíf greinir frá þessu og hefur eftir heimildarmönnum að fleiri atvik af svipuðum toga hafi komið upp í hverfinu. Miðillinn segist hafa fengið eitt annað sambærilegt atvik staðfest en einnig ábendingar um fleiri tilvik sem ekki hefur tekist að sannreyna.
Óhugnanlegt atvik í Laugardal – Unglingur bundinn og skilinn eftir