Sífellt fleiri börn í Jemen þjást af vannæringu. Eftir að stríðsátök brutust út á ný hafa 145.000 manns lagt á flótta. Alþjóða heilbrigðisstofnunin varar við því að heilbrigðiskerfi landsins sé komið að þolmörkum.
Hörð átök brutust úr milli Húta og stjórnarhersins í Jemen í sumar og Hútar náðu völdum yfir strönd landsins að Rauðahafi. Átökin bitna harkalega á almennum borgurum. Áður en þessi átök brutust út var áætlað að rúmlega 2,2 milljónir barna yngri en fimm ára þjáðust af bráðri vannæringu.
Fulltrúi UNICEF í landinu, Akhil Iyer, segir að vannæring barna hafi aukist mikið, þar á meðal alvarleg vannæring. Ný tilfelli vannæringar barna eru greind daglega, segir hann. Á blaðamannafundi á dögunum sagði hann frá Haifa, ungri móður, sem flýði heimili sitt á vesturströnd landsins. „Hún sagði okkur frá því að skothvellirnir hafi færst nær húsinu hennar, það hristist. Hún hafði engan tíma til að hugsa og lagði strax á flótta með fjölskyldu sinni.“ Þau búi nú í tjaldi í flóttamannabúðum við mikinn skort. Innkoma heimilisins sé engin og þau skorti bæði mat og lyf.
UNICEF hefur í haust rannsakað heilsu tæplega 2.900 barna á svæðum sem teljast örugg. Af þeim þjáist eitt af hverjum fjórum af bráðri vannæringu. Um 200 þjást af mjög alvarlegri vannæringu. „Þetta er aðeins lítill hluti af vandanum,“ segir Iyer.
Kólera og mislingar breiðast út
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin varaði við því í vikunni að heilbrigðiskerfi Jemens væri komið að þolmörkum. Sjúkdómar eins og kólera og mislingar breiddust út. „Stigmögnun átaka undanfarið hefur þrýst heilbrigðiskerfinu, sem var þegar undir miklu álagi, að þolmörkum,“ sagði Annette Heinzelmann, yfirmaður neyðaraðstoðar stofnunarinnar, við blaðamenn á þriðjudag.
Hún sagði stöðuna mjög ótrygga. Innviðir hefðu verið skemmdir, heilbrigðisstarfsmenn hefðu neyðst til að leggja á flótta og skortur væri á lyfjum og lækningabúnaði. Þá væru verulegir tálmar á ferðum fólks á vesturströnd landsins. Það hefði þau áhrif að fólk gæti síður leitað sér heilbrigðisþjónustu.
Talið er að um 145.000 manns hafi yfirgefið heimili sín. Heinzelmann segir að fólk búi við þröngan kost í tjöldum í flóttamannabúðum þar sem skortur sé á hreinlæti sem ýti enn frekar undir útbreiðslu sjúkdóma.
Ein versta mannúðarkrísa heims frá 2014 til 2022
Borgarastyrjöld var í Jemen frá 2014 til 2022 og var henni lýst sem einni mestu mannúðarkrísu heims. Sameinuðu þjóðirnar lýstu því yfir 2019 að um 80 prósent landsmanna þyrftu á mannúðaraðstoð að halda. Á þessum tíma hafði stríðið staðið í fimm ár.
Árið 2022 höfðu Sameinuðu þjóðirnar milligöngu um vopnahlé. Sádar, stjórnvöld í Jemen og Hútar sömdu um áætlun um varanlegan frið sem aldrei var hrint í framkvæmd. Eftir þetta skánaði þó ástandið í landinu.
Stigmögnun síðan í sumar
Hútar hófu í júlí árásir á olíu- og gasinnviði í Sádí-Arabíu og hafa reynt að hindra útflutning Sáda á olíu um Rauðahaf. Þeir hafa einnig gert árásir á svæði í Jemen undir stjórn ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin hefur svarað með árásum á Húta og hefur óskað eftir stuðningi alþjóðasamfélagsins til að stöðva framgang þeirra.
Alþjóðlega fólksflutningastofnunin, IOM, áætlar að um 22 milljónir Jemena þurfi nauðsynlega á mannúðaraðstoð að halda í dag.
Er friður í sjónmáli?
Erindreki Sameinuðu þjóðanna í málefnum Jemens, Hans Grundberg, hitti aðalsamningamann Húta um síðustu helgi. Þeir ræddu leiðir til að forða enn meiri stigmögnun átaka.
Grundberg sagði í viðtali við The Associated Press að hann hefði einnig rætt við fulltrúa ríkisstjórnar Jemens og Sádí-Arabíu. „Það sem við höfum orðið vitni að í Jemen síðustu vikur á sér enga hliðstæðu sé litið til þess hversu alvarleg stigmögnunin er,“ sagði hann. Hann telur að stríðandi fylkingar reyni að meta þær breytingar sem hafi orðið á þessum stutta tíma.
Ýmislegt sé þó enn á huldu og eigi eftir að skýrast betur áður en metið verði hvaða kostir séu í stöðunni, hvort menn vilji halda vopnuðum átökum áfram eða ræða saman.
Þá segir Grundberg ljóst að eitt fátækasta ríki heims sé að breytast aftur í vígvöll. „Við höfum orðið vitni að því að víglínur eru aftur að teiknast upp í Jemen.“ Þá hafi einnig verið auknar árásir yfir landamæri Jemens og á flutningaskip á Rauðahafi. Þetta sé mjög alvarleg þróun sem ætti að vera Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna áhyggjuefni.