Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar. Hann tók við stjórn fyrirtækisins síðla árs 2009. Landsvirkjun greinir frá þessu í tilkynningu.
Þar segir að á þeim 17 árum sem Hörður hefur gegnt starfinu hafi orðið stakkaskipti á bæði rekstri Landsvirkjunar og raforkumarkaðnum á Íslandi.
„Hörður leiddi fyrirtækið í gegnum miklar breytingar þar sem meðal annars var endursamið við stóra viðskiptavini, fjórar nýjar virkjanir byggðar, skuldir lækkaðar og í kjölfarið er Landsvirkjun nú farin að skila þjóðinni tugum milljarða í skatta og arðgreiðslur á hverju ári,“ segir í tilkynningu Landsvirkjunar.
Gegnir starfinu út október
„Ég stíg bæði ánægður og stoltur frá borði eftir þessi sautján ár. Fyrst og fremst langar mig að þakka öllum þeim sem hafa lagt sitt af mörkum og átt þátt í þeim góða árangri sem við höfum náð fyrir Landsvirkjun og íslenskt samfélag – ekki síst starfsfólki fyrirtækisins. Það er ánægjulegt að skilja við Landsvirkjun jafn sterka og raun ber vitni,“ er haft eftir Herði í tilkynningunni.
Hörður mun starfa út októbermánuð. Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, tekur tímabundið við starfi forstjóra frá 1. nóvember, þar til nýr forstjóri verður ráðinn.