Sonur Ástu Maríu er 26 ára en hann hefur búið í eigin íbúð í þjónustukjarna í 4 ár. Þar nýtur hann aðstoðar starfsfólks en hann er með downs og einhverfugreiningu. Ásta segir að sonur hennar hafi alltaf sótt mikið í mat en að hún hafi alltaf lagt áherslu á að hann borðaði hollt fæði og hreyfði sig mikið. Hann sé með áráttuhegðun sem lýsi sér meðal annars í því að hann tyggi ermar á fötum, sem geti mögulega skýrt hvers vegna hann sæki í mat. Þótt um sé að ræða sókn í mat í tilfelli sonar Ástu geta sömu spurningar kviknað varðandi til dæmis áfengisneyslu.
Er hægt að að banna fólki með þroskahömlun að taka skaðlegar ákvarðanir?
Sjálfstæði og sjálfræði fatlaðs fólks er eitt af lykilatriðunum í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem Alþingi lögfesti í fyrra. Þar er kveðið á um að fatlað fólk hafi frelsi til að taka eigin ákvarðanir. En þar segir líka að efla eigi þjálfun og þekkingu fagfólks og starfsfólks sem vinnur með fötluðu fólki á þeim réttindum sem eru viðurkennd með samningnum í því skyni að betrumbæta þá aðstoð og þjónustu sem þau réttindi tryggja.
Ásta segist hafa fullan skilning á þeirri aðstöðu sem starfsfólkið sé í. Það geti verið flókið að grípa inn í þegar sjálfráða einstaklingur vill gera ákveðna hluti. Hins vegar hafi verið rætt að setja hann annað hvort á þyngdarstjórnunarlyf eða jafnvel lás á ísskápinn. Hún skilji þó ekki hvernig það geti talist vægara inngrip en að einfaldlega segja við hann að nú sé hann búinn að fá nóg.
Hluti vandamálsins sé starfsmannavelta en henni líði ítrekað eins og hún þurfi að segja sömu hlutina mörgum sinnum. Þetta sé líka erfitt fyrir son hennar sem þurfi ítrekað að mynda ný tengsl við starfsfólk.
Er alltaf stolt af syni sínum
Ásta María segir að það sé sérstaklega flókið fyrir foreldra fólks með þroskahömlun að sleppa takinu á þeim þegar það verður fullorðið. Þörfin til að sinna þeim og styðja sé alltaf til staðar. Hún kvíðir framtíðinni og reyni því eins og hún getur að sinna eigin heilsu til að geta stutt hann áfram. Hún segist alltaf vera stolt af syni sínum, en þó sérstaklega þegar hann segi hluti sem enginn annar myndi gera. Hann minni hana á að flýta sér ekki of mikið í lífinu. Að ala hann upp hafi verið forréttindi sem hafi haft góð áhrif á hana sjálfa.