Ragnheiður Ríkharðsdóttir, formaður Heilahjálpar, segir það lágmark að bera gjöf sterkra geðlyfja undir aðstandendur fólks með heilabilun.
Bæði hún og formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segja ljóst að mönnunarvandi hrjái hjúkrunarheimili landsins.
„Ef starfsfólk eða læknar á hjúkrunarheimili telja ástæðu til að gefa geðlyf þeim sem ekki hefur fengið neina slíka greiningu og er með heilabilun – þá er lágmark að ræða við aðstandendur ef sá sem er með heilabilunina getur ekki svarað fyrir sig sjálfur.“
segir Ragnheiður. Hún segir að sér hafi verið brugðið eftir að hafa horft á umfjöllunina sem segir varpa ljósi á manneklu á hjúkrunarheimilum.
Fagfólk þarf til að sinna mjög veiku fólki
Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, tekur í svipaðan streng. Hún telur að það sem þátturinn dragi fram eigi rætur sínar að rekja til mönnunarvanda.
Helga segir að þar sem fagfólk sé að störfum sé gott starf unnið. Fólk sem kemur inn á hjúkrunarheimili í dag er þó að hennar sögn mjög veikt. Það kalli á sterkan faglegan grunn til að sinna því vel.
„Við hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga viljum auðvitað sjá að það sé farið í almennilega vinnu við að það séu sett á lögbundin mönnunarviðmið.“
Hún segir að það þurfi að vera skýrt þegar margir veikir einstaklingar eru annars vegar þurfi fagfólk að sinna þeim.
Sjálf segist Helga Rósa hafa orðið leið við að horfa á umfjöllun Kveiks í vikunni.
„Ég trúi þeim og veit að stundum fara hlutirnir ekki eins og ætlast er til. Það er leitt að heyra af reynslu þessara einstaklinga.“