Fimm eru særðir, þar af einn lífhættulega, eftir skotárás í ríkisháskóla Virginíu-ríkis (e. Virginia State University) í Bandaríkjunum. Lögreglumenn brugðust við tilkynningu um árásina snemma morguns.
Á vettvangi fundu lögreglumenn fimm með áverka. Fjórir voru með áverka sem ekki voru taldir lífshættulegir en einn er alvarlega særður. Allir voru fluttir á spítala.
Ójóst er hvort árásarmaðurinn eða mögulegir árásarmenn hafi verið handteknir eða ekki.
Háskólanum var lokað í kjölfar árásarinnar en hefur verið opnaður á ný. Enn er þó mikill fjöldi lögreglumanna á vettvangi.
Um 5.700 nemendur eru í háskólanum sem staðsettur er um 20 mílur frá borginni Richmond sem er höfuðborg Virginíu-ríkis. Háskólinn var sá fyrsti í Bandaríkjunum sem hlaut fullan ríkisstuðning til fjögurra ára náms fyrir svarta Bandaríkjamenn sem áður gátu ekki gengið í háskóla.