Skoða þarf gjöf sterkra geðlyfja á hjúkrunarheimilum í stærra samhengi, segir Anna Björg Jónsdóttir, yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítalanum.
Fyrr í vikunni ræddi Kveikur við fjölskyldur fólks sem taldi að ættingjar þeirra hefðu verið lyfjaðir fram úr hófi. Umfjöllunina skorti jafnvægi að mati Önnu Bjargar.
„Það eina sem þessi umfjöllun gerði, því miður, er að skapa úlfúð, kvíða, vanlíðan, óþarfa áhyggjur fólks og vantraust í garð þjónustunnar og það þjónar engum tilgangi,“ segir hún.
Önnu Björgu þótti lyfjagjöfin ekki skoðuð frá nægilega mörgum sjónarhornum í umfjölluninni.
„Það var horft á mjög afmarkaðan þátt í starfsemi hjúkrunarheimila og starfsemi öldrunarþjónustu yfirhöfuð – sem er lyfjanotkun á ákveðnum tegundum af geðlyfjum og eiginlega svolítið sett upp eins og það væri uppruni alls ills.“
Hennar reynsla af sterkum geðlyfjum er að þau séu notuð sparlega og endurskoðuð reglulega. Hún segir engan leika sér að því að gefa fólki þau.
„Þau eru sett inn þegar búið er að reyna allt annað og þetta er það eina sem eftir er.“
„Það þýðir ekki að það séu allir alltaf á þessum lyfjum“
Í umfjöllun Kveiks kom fram að 37% íbúa hjúkrunarheimila landsins hafi fengið sterk geðlyf í fyrra en 34% árið áður. Landlæknir mælist til þess að ekki fleiri en 31% íbúa fái lyfin í öðrum tilfellum en mælt er með.
Anna Björg segir að þessi mæling skoði hvernig staðan er á tilteknum tímapunkti.
„Það getur vel verið að á þeim tímapunkti hafi verið svona margir. Það þýðir ekki að það séu allir alltaf á þessum lyfjum.“
Hún bendir enn fremur á að skammtastærðir séu gríðarlega mikilvægar í samhengi hjúkrunarheimila.
„Við erum ekki að tala um skammtastærðir sem eru notaðar við geðhvörfum eða geðrofi. Við erum að tala um miklu, miklu, miklu lægri skammta.“