Skipar sér­stakan sak­sóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla - Vísir

Skipar sér­stakan sak­sóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla - Vísir

Skipar sér­stakan sak­sóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla - Vísir

Hópnauðgunin á að hafa átt sér stað í húsnæði bræðralags við skólann þann 19. október 2024. Sjö menn eru sakaðir um að nauðga konunni klukkustundum saman.

Konan tilkynnti nauðgunina til lögreglu og skólans nokkrum vikum eftir árásina en saksóknari í Tompkins-sýslu ákvað að ákæra ekki í málinu. Mennirnir sættu agaviðurlögum í skólanum eins og að taka aukakúrs eða skrifa ritgerð auk þess sem einn var rekinn úr skólanum og einhverjir þeirra tímabundið.

Fram hefur komið að mennirnir auglýstu það í hópspjalli að konan væri uppi í húsinu og öðrum mönnum var boðið að vera með. Samkvæmt því sem hefur komið fram voru 57 karlmenn í spjallinu og sjö tóku þátt. Enginn þeirra 57 sem sáu boðið tilkynnti það.

Hafi ekki verndað hana nægilega eða refsað mönnunum

Málið hefur vakið heimsathygli eftir að konan höfðaði einkamál í síðasta mánuði en þar segir hún Cornell-háskóla ekki hafa verndað hana eða refsað mönnunum á fullnægjandi hátt.

„Nýjar upplýsingar hafa vakið upp alvarlegar spurningar um hvernig farið var með þetta mál og ég hef misst trúna á getu saksóknara Tompkins-sýslu til að hafa sanngjarnt eftirlit með því,“ sagði Hochul í tilkynningu um málið. Þar með hefur hún svipt Matthew Van Houten, saksóknara Tompkins-sýslu, eftirliti með málinu.

Van Houten sagði í síðasta mánuði að málið yrði tekið aftur upp og að gögnin yrðu lögð fyrir sérstakan kviðdóm. Van Houten hefur haldið því fram að í fyrstu frásögn konunnar til lögreglu hafi ekki komið fram ásakanir um að henni hefði verið byrlað, að hún hefði verið ófær um að veita samþykki eða að hún hefði verið neydd til kynlífs. Hann sagði upplýsingar sem koma fram í einkamáli hennar ekki hafa komið fram áður og þess vegna sé til skoðunar að taka málið upp að nýju.

„Unga konan sem er miðpunktur þessa máls á skilið að vita að öllum staðreyndum verður snúið við og réttlætinu fylgt eftir,“ sagði Hochul í yfirlýsingu.

Afhentu Snapchat-spjallið

Í frétt BBC um málið segir að ríkissaksóknari muni, ef tilefni er til, sækja til saka öll brot sem rannsókn leiðir í ljós og leggja fram sönnunargögn fyrir kviðdómi. Þar kemur einnig fram að Letitia James, æðsti lögmaður ríkisins, hafi sagt á samfélagsmiðlinum X að hún væri reiðubúin „að leiða ferli sem byggir á staðreyndum og lögum“.

„Ríkisstjórinn hefur falið skrifstofu minni þessa rannsókn og við tökum þeirri ábyrgð ekki létt,“ bætti James við.

Letitita James, aðallögfræðingur New York-ríkis, segist taka skipunina mjög alvarlega. Vísir/EPA

Háskólinn hefur sjálfur gefið út, eftir að málið komst í heimsfréttirnar, að málið verði tekið til skoðunar að nýju. Í frétt BBC segir enn fremur að skólinn hafi lagt ríkissaksóknara lið með því að afhenda þeim Snapchat-hópspjall þar sem meðlimir bræðralagsins sendu skilaboð um „ókeypis píku“ aðfaranótt árásarinnar.

Mikið hefur verið fjallað um málið í erlendum miðlum, sérstaklega í Bandaríkjunum. Í frétt New York Times í gær var til dæmis farið yfir aðdraganda þess að konan tilkynnti nauðgunina til skólans og samskipti hennar við herbergisfélaga sína nóttina sem árásin átti sér stað.

Þar kemur til dæmis fram að eftir atvikið hafi konan, sem yfirleitt er kölluð Jane Doe, skammast sín en hafi að lokum komist að þeirri niðurstöðu að brotið hafi verið á henni. New York Times vísar í umfjöllun sinni til gagna háskólans sem safnað var í kjölfar þess að árásin var tilkynnt en stjórnendur skólans yfirheyrðu fjölda manns vegna málsins.

Sá ekki að um væri að ræða ofbeldi strax

Í fréttinni er til dæmis vísað til yfirheyrslna kvenna sem þekkja Jane Doe sem segja að þær líti á atburði kvöldsins sem kynferðisofbeldi en Doe hafi glímt við skömm, niðurlægingu og áhyggjur af orðspori sínu áður en hún fór að líta á sig sem fórnarlamb ofbeldis.

„Ég man eiginlega ekki eftir því að hún hafi nokkurn tíma nefnt að hún hefði samþykkt neitt af því sem gerðist,“ sagði einn af herbergisfélögum hennar um fyrstu klukkustundirnar eftir að Jane Doe kom heim að morgni 20. október. Þar kemur einnig fram að herbergisfélagar hennar hafi sent henni skilaboð og spurt hvort hún ætlaði að koma heim um þrjú sem hún svaraði. Hún hafi svo ekki komið heim fyrr en um ellefu og greint frá því að hún hafi neytt ketamíns og haft kynmök við marga menn. Annar herbergisfélaginn sagði rannsakendum að Jane Doe hefði ekki enn á þessum tímapunkti verið farin að nota orðið „nauðgun“ eða „ofbeldi“.

Það virtist sem hún væri „í áfalli“, sagði hinn herbergisfélaginn síðar við rannsakendur, „og skildi ekki alveg alvarleika þess sem hún var að segja.“

Þá segir að daginn eftir hafi hún rætt við „stóru systur“ sína, eins konar leiðbeinanda, um áhyggjur sínar af sögusögnum um að hún væri drusla.

„Ég gat séð – bara af eigin reynslu – að það sem hún var að ganga í gegnum var að hún var ekki enn búin að vinna úr því sem hafði gerst,“ sagði stóra systirin við rannsakendur.

Sama dag fékk Jane Doe textaskilaboð frá Jonathan Newell, einum þeirra sjö sem hún síðar sakaði um að hafa brotið á sér.

Baðst afsökunar

„Ég vildi bara biðjast afsökunar á því hvernig hlutirnir fóru um daginn,“ skrifaði Newell.

Hann sagði að bæði honum og Matthew Ingalls, öðrum sem hún sakaði um ofbeldi, liði hræðilega yfir því að hafa verið undir áhrifum of mikilla vímuefna og áfengis til að „stöðva þetta og henda fólki út áður en þetta fór algjörlega úr böndunum“.

„Þegar öllu er á botninn hvolft var ekkert af kynlífinu ólöglegt og satt best að segja fannst mér mjög gaman að vera með þér og Matt,“ svaraði Doe skilaboðunum.

Í frétt New York Times segir að degi síðar hafi hún pantað tíma hjá lækni háskólans vegna þvagfærasýkingar og til að fá kynsjúkdómaskimun. Hún sagði lækninum að hún hefði fengið þvagfærasýkinguna „við erfiðar aðstæður“ samkvæmt afriti af samtali hennar við rannsakendur.

„Hún fylgdi því ekki raunverulega eftir,“ sagði Jane Doe um lækninn. „Hún stakk bara upp á því að ég færi í meðferð.“

Bræðralagið hefur verið bannað á háskólasvæðinu frá því 2024.Vísir/AP

Skilningur á atvikinu breyttist

Þá kemur fram í fréttinni að eftir því sem leið á mánuðinn hafi skilningur Doe á því sem gerðist breyst að sögn herbergisfélaga hennar og segir að í kringum 3. nóvember hafi hún verið komin að þeirri niðurstöðu að hún hafi verið beitt kynferðisofbeldi.

„Höfum það á hreinu að 90 prósent af því sem gerðist þetta kvöld var ekki með samþykki. Mér var gefið meira key en ég man eftir,“ sagði hún en það er slangur yfir ketamín.

„Og ég veit að ég sagði þér að mér liði óþægilega og að ég þekkti engan í herberginu,“ hélt hún svo áfram. Hún sagði auk þess að ein af fáum minningum sínum væri að hafa tekið ketamín af getnaðarlim hans „fyrir framan alla eins og kynlífsdúkka/kynlífsverkakona.“

Fjórum dögum síðar, þann 7. nóvember, fór hún samkvæmt skjölunum á bráðamóttöku í Ithaca, þar sem háskólinn er staðsettur, og óskaði eftir því að fram færi safn sönnunargagna vegna kynferðislegs ofbeldis.

#hópnauðgunar #saksóknara #skipar #sérstakan #vegna

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262942750d/skipar-serstakan-saksoknara-vegna-hopnaudgunar-vid-cornell-haskola

📰 Aðrar fréttir

Best Web Hosting for UK Small Businesses in the Canaries: A 2026 Comparison
📅 02.10.2026 👁️ 0
Best Web Hosting for UK Small Businesses in the Canaries: A 2026 Comparison
Run a rental agency in Playa de las Américas or a dive school in Costa Teguise, and your website's uptime matters more than your Instagram following. ...
Magnea Björg sá strax eftir því að hafa opnað drykkinn – Sjáðu myndbandið
📅 02.10.2026 👁️ 0
Magnea Björg sá strax eftir því að hafa opnað drykkinn – Sjáðu myndbandið
Áhrifavaldurinn og raunveruleikastjarnan Magnea Björg Jónsdóttir sá heldur betur eftir því þegar hún opnaði dós af útrunnum Nocco drykk.„Búin að geyma...
Þórður Snær segir þetta ástæðuna fyrir því að ríka fólkið vilji ríkisstjórnina burt
📅 02.10.2026 👁️ 0
Þórður Snær segir þetta ástæðuna fyrir því að ríka fólkið vilji ríkisstjórnina burt
Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, segir að eigið fé tekjuhæstu tíundar þjóðarinnar hafi vaxið um 92 prósent eða 2....
3.2 earthquake felt across Fuerteventura
📅 02.10.2026 👁️ 0
3.2 earthquake felt across Fuerteventura
A magnitude 3.2 earthquake was recorded off the coast of Fuerteventura early this morning (Friday) and was strong enough to be felt by people on the i...
Aug­lýsing fyrir Bleiku slaufuna frum­sýnd á Vísi og Sýn - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Aug­lýsing fyrir Bleiku slaufuna frum­sýnd á Vísi og Sýn - Vísir
Bleika slaufan er árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins í október, tileinkað baráttunni gegn krabbameini hjá konum.  Sjónvarpsauglýs...
Kanye bannað að koma fram í Rússlandi fyrir að vegsama nasisma
📅 02.10.2026 👁️ 0
Kanye bannað að koma fram í Rússlandi fyrir að vegsama nasisma
Kanye bannað að koma fram í Rússlandi fyrir að vegsama nasisma Fréttin2. október 2026Erlent, TónlistLeave a Comment Kanye West. Bandaríski rapparinn o...
Modi hefur „mjög góðar hugmyndir“ til að binda enda á átökin í Úkraínu – Pútín
📅 02.10.2026 👁️ 0
Modi hefur „mjög góðar hugmyndir“ til að binda enda á átökin í Úkraínu – Pútín
Modi hefur „mjög góðar hugmyndir“ til að binda enda á átökin í Úkraínu – Pútín Fréttin2. október 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Vladímír Pú...
Mikilvægt að halda líka aftur af kílómetragjaldinu
📅 02.10.2026 👁️ 0
Mikilvægt að halda líka aftur af kílómetragjaldinu
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og Verkalýðsfélags Akraness, segir að stjórnvöld verði að halda aftur af hækkunum kílómetragjal...
„Þungur vetur framundan á vinnumarkaði“
📅 02.10.2026 👁️ 0
„Þungur vetur framundan á vinnumarkaði“
181 var sagt upp í sex hópuppsögnum í september, flestum á sviði hugbúnaðar- og upplýsingatækni. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir margt benda til að...
Fékk ótrúlegar fréttir 58 ára – Heimsfrægur söngvari reyndist faðir hans
📅 02.10.2026 👁️ 0
Fékk ótrúlegar fréttir 58 ára – Heimsfrægur söngvari reyndist faðir hans
Michael Goessling hafði alla tíð vitað að hann væri ættleiddur og vissi lítið um líffræðilegan uppruna sinn. Það breyttist heldur betur þegar DNA-próf...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Frá fyrsta sæti í það tuttugasta og sjötta
📅 02.10.2026 👁️ 0
Sigvaldi Einarsson skrifar: Frá fyrsta sæti í það tuttugasta og sjötta
Alþjóðahugverkastofnunin (WIPO) birti nýsköpunarvísitölu ársins 29. september. Ísland er í 26. sæti, niður úr 24. í fyrra, og neðst Norðurlandanna: Sv...
Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 0
Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut - Vísir
Þetta kemur fram í umfjöllun Variety sem hefur þetta eftir leikaranum. Cumming fer með hlutverk X-mannsins Nightcrawler í myndinni. Hann fór síðast me...
Geri málið tor­tryggi­legt að neita að svara - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Geri málið tor­tryggi­legt að neita að svara - Vísir
Frá því að Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, steig fram og skilaboð milli hans og fyrrverandi aðstoðarkonu hans vo...
„Við höfum séð mikla aukningu á því á Ís­landi“ - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
„Við höfum séð mikla aukningu á því á Ís­landi“ - Vísir
Á síðasta ári var greint frá nýju efni á vímuefnamarkaði hér á landi, efni sem kallað er 4-CMC, sem virðist nú vera búið að ná fótfestu.  Adam Erik Ba...
Kortavefurinn með meiri hraða og betra aðgengi í gegnum símtæki
📅 02.10.2026 👁️ 0
Kortavefurinn með meiri hraða og betra aðgengi í gegnum símtæki
Kortavefurinn map.is hefur verið uppfærður. Hraðinn er orðinn meiri, útlitið er frísklegra og Íslandskortið er nú sérstaklega sett upp fyrir síma. All...
Allt að 5,7% verðlækkun hjá Hyundai á Íslandi
📅 02.10.2026 👁️ 1
Allt að 5,7% verðlækkun hjá Hyundai á Íslandi
Hyundai á Íslandi lækkaði á fimmtudag verð á sex bílgerðum umboðsins og nemur lækkunin um á bilinu 3,8 - 5,7 prósenta. Verðlækkunin er mismikil eftir ...
RÚV-aktívismi og mótun umræðunnar
📅 02.10.2026 👁️ 1
RÚV-aktívismi og mótun umræðunnar
RÚV-aktívismi og mótun umræðunnar Fréttin2. október 2026Eurovision, Innlent, Páll Vilhjálmsson, RÚVLeave a Comment Diljá Ámundadóttir varaþingmaður Vi...
„Er meira virkilega betra“ í þjálfun barna?
📅 02.10.2026 👁️ 1
„Er meira virkilega betra“ í þjálfun barna?
Í æfingaviðmiðum Fimleikasambands Íslands er mælt með því að 12 ára börn æfi áhaldafimleika í allt að 3,5 tíma í senn 5-6 sinnum í viku.Börn allt niðu...
French school protests send shivers down the government's spine
📅 02.10.2026 👁️ 1
French school protests send shivers down the government's spine
A movement that started nearly two weeks ago has spread, and in France young people on the streets spells trouble, writes Hugh Schofield.
K-pop giants Stray Kids join BTS in boycotting the 2027 Grammy Awards
📅 02.10.2026 👁️ 0
K-pop giants Stray Kids join BTS in boycotting the 2027 Grammy Awards
Stray Kids become the second major act to withdraw from the Grammys over the new best Asian Pop award.
Mennta­skóla­nemar mót­mæla: Ís­lensk stúlka varð fyrir tára­gasi - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Mennta­skóla­nemar mót­mæla: Ís­lensk stúlka varð fyrir tára­gasi - Vísir
„Það er dálítið sérstök stemning hérna í París og Frakklandi,“ segir Ásdís í samtali við fréttastofu. Nemendur í yfir þúsund menntaskólum í Frakklandi...
ESB mótmælir hugmynd Bandaríkjanna um útflutningsbann á dísilolíu
📅 02.10.2026 👁️ 0
ESB mótmælir hugmynd Bandaríkjanna um útflutningsbann á dísilolíu
Evrópusambandið mótmælir harðlega áformum Bandaríkjastjórnar um útflutningsbann á dísilolíu. Slíkt geti rýrt traust á Bandaríkjunum sem viðskiptavini....
Kærasti Gypsy Rose Blanchard látinn 34 ára að aldri
📅 02.10.2026 👁️ 1
Kærasti Gypsy Rose Blanchard látinn 34 ára að aldri
Ken Urker, kærasti og barnsfaðir Gypsy Rose Blanchard, er látinn 34 ára að aldri. Dánarorsök hefur ekki verið opinberuð en samkvæmt fjölmiðlum vestanh...
Birta var í Texas að taka upp klám en flúði aðstæður - „Þær óttuðust um líf sitt, ég líka“
📅 02.10.2026 👁️ 0
Birta var í Texas að taka upp klám en flúði aðstæður - „Þær óttuðust um líf sitt, ég líka“
Klámstjarnan Birta Blanco opnar sig um upplifun sína í Texas í sumar. Hún fór þangað til að taka upp klám með sama framleiðslufyrirtæki og hún gerði f...
Svona fór John Goodman að því að missa 90 kíló án þess að nota Ozempic
📅 02.10.2026 👁️ 1
Svona fór John Goodman að því að missa 90 kíló án þess að nota Ozempic
Bandaríski leikarinn John Goodman, sem er meðal annars þekktur fyrir leik sinn í Roseanne, The Big Lebowski og The Righteous Gemstones, hefur misst rú...
Covid-innlögnum fjölgar hratt – Þetta eru einkennin sem læknar sjá núna
📅 02.10.2026 👁️ 0
Covid-innlögnum fjölgar hratt – Þetta eru einkennin sem læknar sjá núna
Covid virðist aftur vera að sækja í sig veðrið í Bretlandi og hefur sjúkrahúsinnlögnum vegna veirunnar fjölgað um tæplega 50 prósent á aðeins einni vi...
Ákærður fyrir árás á Akureyri: Lögðu hald á kylfu með álímdum sprautunálum
📅 02.10.2026 👁️ 0
Ákærður fyrir árás á Akureyri: Lögðu hald á kylfu með álímdum sprautunálum
Maður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og vopnalagabrot vegna atvika í húsi í Gránufélagsgötu á Akureyri sein...
Þaulskipulagt brot Íslendinga og Hollendinga endaði þegar húsbíllinn var stöðvaður í Laugardal
📅 02.10.2026 👁️ 0
Þaulskipulagt brot Íslendinga og Hollendinga endaði þegar húsbíllinn var stöðvaður í Laugardal
Fimm menn, tveir Ísleningar og þrír Hollendingar, hafa verið ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnabrot, með því að hafa staðið að innflutningi á rúmlega 1...
Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með - Vísir
Inga ræddi áfengisneyslu sína í viðtali sem birtist á Smartlandi í morgun. Innt eftir þyngdartapi sínu segist hún hafa dregið úr áfengisneyslu sinni. ...
Ís­lensk skóla­stúlka varð fyrir tára­gasi í París - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Ís­lensk skóla­stúlka varð fyrir tára­gasi í París - Vísir
Smellið hér til að hlusta á hádegisfréttir. Á annað hundrað skóla hefur verið lokað í Frakklandi vegna mótmæla stúdenta. Framhaldsskólanemendur hófu a...
Engin ákvörðun um að draga úr hækkun kílómetragjalds
📅 02.10.2026 👁️ 1
Engin ákvörðun um að draga úr hækkun kílómetragjalds
Ríkisstjórnin hefur ekki tekið ákvörðun um að draga úr hækkun kílómetragjalds þrátt fyrir áform sín um að hækka krónutölugjöld og gjaldskrár um 2,5 pr...
Ríkið yrði af 1,6 milljarða tekjum ef gjaldahækkanir fylgdu verðbólgumarkmiði
📅 02.10.2026 👁️ 0
Ríkið yrði af 1,6 milljarða tekjum ef gjaldahækkanir fylgdu verðbólgumarkmiði
Ríkið yrði af 1,6 milljarða tekjum ef gjaldahækkanir fylgdu verðbólgumarkmiði Fjár­mála­ráðu­neyt­ið met­ur tekjutap ef gjalda­hækk­an­ir verða tak­ma...
Julie Ann McIlwaine: Murder conviction overturned for woman who killed abusive partner
📅 02.10.2026 👁️ 1
Julie Ann McIlwaine: Murder conviction overturned for woman who killed abusive partner
The Court of Appeal ruled that jurors were misdirected on Julie Ann McIlwaine's loss of control defence to the killing of James Joseph Crossley.
Syrgði Sovét­ríkin og hótaði notkun kjarn­orku­vopna - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 0
Syrgði Sovét­ríkin og hótaði notkun kjarn­orku­vopna - Vísir
Ræða Pútíns snerist að miklu leyti um samskipti Rússlands við Evrópu og lagði forsetinn alla sökina að þessum versnandi samskiptum við fætur leiðtoga ...
Undirbúa tilmæli um prófanir farsíma eftir lokun 2G og 3G
📅 02.10.2026 👁️ 1
Undirbúa tilmæli um prófanir farsíma eftir lokun 2G og 3G
Fjarskiptastofa vinnur að tilmælum um prófun á virkni neyðarsímtala í 112 áður en símar eru settir á markað á Íslandi. Tilmælin ná til innflytjenda og...
181 sagt upp í sex hópuppsögnum
📅 02.10.2026 👁️ 1
181 sagt upp í sex hópuppsögnum
Alls missti 181 vinnuna í þeim sex hópuppsögnum sem voru tilkynntar til Vinnumálastofnunar í síðasta mánuði.Uppsagnirnar eru flestar í tveimur atvinnu...
Ótti við viðbrögð annarra getur haldið okkur í aðstæðum sem draga úr okkur orkuna
📅 02.10.2026 👁️ 0
Ótti við viðbrögð annarra getur haldið okkur í aðstæðum sem draga úr okkur orkuna
Aðalheiður Jensen beinir sjónum að næringu sem við hugsum síður um í nýjum pistli, því sem við tökum inn í hugann og samskiptunum sem við eigum við að...
Hlaut nálgunarbann á hendur Berry eftir á­sakanir um of­beldi - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Hlaut nálgunarbann á hendur Berry eftir á­sakanir um of­beldi - Vísir
Fjölmiðlar vestanhafs fjölluðu í gær um að Martinez hefði óskað eftir nálgunarbanni á hendur Berry og að hún yrði svipt forræði yfir tólf ára syni þei...
Nálgunarbann á hendur Berry eftir á­sakanir um að taka soninn háls­taki - Vísir

Út­kall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Út­kall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti - Vísir
Eitt atriðið í fyrsta þættinum vakti sérstaka athygli og var það þegar tveir lögregluþjónar fóru í útkall vegna heimilisofbeldis. Þegar á hólminn var ...
Flugstjórinn sem ráðist var á: „Áttaði mig á að vélin væri að hrapa“
📅 02.10.2026 👁️ 1
Flugstjórinn sem ráðist var á: „Áttaði mig á að vélin væri að hrapa“
„Þar sem ég lá á gólfinu áttaði ég mig á því að vélin væri að hrapa. Ég sagði við sjálfan mig: „Þetta er síðasta átakið, Smit. Hurðin er stutt frá.“ H...
Laug að Morgun­blaðinu um nýjan KFC-stað - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Laug að Morgun­blaðinu um nýjan KFC-stað - Vísir
Patrik birti myndskeið á samfélagsmiðlum í gærkvöldi þar sem hann sagði að til stæði að opna KFC-stað við Hæðasmára en hefur myndskeiðinu nú verið eyt...
Sameinuðust um að myrða fyrrverandi eiginkonu og sundurlima líkið
📅 02.10.2026 👁️ 1
Sameinuðust um að myrða fyrrverandi eiginkonu og sundurlima líkið
Fyrrverandi eiginmaður, tengdafaðir og mágur áhrifavaldsins og fyrirsætunnar Abby Choi sitja á sakabekk í Hong Kong sakaðir um að hafa myrt hana. Rétt...
Andersson gerir aðra tilraun til stjórnarmyndunar
📅 02.10.2026 👁️ 2
Andersson gerir aðra tilraun til stjórnarmyndunar
Magdalena Andersson leiðtogi Jafnaðarmanna í Svíþjóð hefur fengið umboð á ný til að mynda ríkisstjórn í Svíþjóð. Andreas Norlén forseti sænska þingsin...
Stefna á þrjú þúsund hektara en endur­heimtu þrettán - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Stefna á þrjú þúsund hektara en endur­heimtu þrettán - Vísir
Markið var sett hátt þegar stjórnvöld kynntu aðgerðaáætlun í landgræðslu og skógrækt árið 2022. Ætlunin var að endurheimta að minnsta kosti 5.300 hekt...
Orðið á götunni: Atvinnulífið blómstrar á Íslandi þrátt fyrir úrtölur og neikvætt raus stjórnarandstöðunnar
📅 02.10.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Atvinnulífið blómstrar á Íslandi þrátt fyrir úrtölur og neikvætt raus stjórnarandstöðunnar
Stjórnarandstöðuþingmenn og hjálparkokkar þeirra halda uppi stöðugum úrtölum og hræðsluáróðri um ástandið á Íslandi og gefa til kynna að illa gangi í ...
Vill að Gunnar Svan verði úrskurðaður látinn
📅 02.10.2026 👁️ 2
Vill að Gunnar Svan verði úrskurðaður látinn
Móðir Gunnars Svans Björgvinssonar, en hann hvarf á Eskifirði árið 2023, hefur birt stefnu til staðfestingar á andláti hans. Höfðar hún mál fyrir Héra...
A 'dark cloud' and 'dismal' mood: What it's like at Cornell amid frat rape allegation
📅 02.10.2026 👁️ 1
A 'dark cloud' and 'dismal' mood: What it's like at Cornell amid frat rape allegation
Students tell the BBC that the tension on campus has become palpable since allegations from 2024 resurfaced.
'Ashamed': Cornell students gather to voice anger over alleged gang rape
📅 02.10.2026 👁️ 1
'Ashamed': Cornell students gather to voice anger over alleged gang rape
Students tell the BBC that the tension on campus has become palpable since allegations from 2024 resurfaced.
Andersson fær annað tækifæri til stjórnarmyndunar
📅 02.10.2026 👁️ 2
Andersson fær annað tækifæri til stjórnarmyndunar
Andersson fær annað tækifæri til stjórnarmyndunar Andreas Nor­len þing­for­seti hef­ur fal­ið Magda­lenu And­ers­son, leið­toga jafn­að­ar­manna, að h...