Sundkappinn Sigurgeir Svanbergsson hefur aðra atrennu að því að synda niður Lagarfljótið endilangt á miðnætti. Hann segir aðstæður margfalt betri nú en þær voru í júní þegar hann þurfti að láta staðar numið vegna ofkælingar.
„Ég held að allir faktorar séu betri núna en þeir voru síðast,“ segir hann.
Sigurgeir reyndi að synda fljótið endilangt í júní en nam staðar eftir 15 kílómetra. Þá var vatnið um 2,7 gráður en er nú talsvert hlýrra, eða um 8–11 gráður. „Við erum að tala um alveg margfalt betri aðstæður.“
Sigurgeir hefur sundið þar sem hann nam staðar síðast. Leiðin er 40 kílómetra löng en þrekraunin er gerð til að styðja við starf Píeta-samtakanna.
Hann kveðst betur undirbúinn nú en þá. „Ég var alls ekki nógu hvíldur, ég var ekki búinn að borða nógu mikið og var ekki með hausinn á réttum stað,“ útskýrir Sigurgeir.
Verður að vera bjartsýnn
Talið er að sundið taki á bilinu 16 til 20 klukkustundir.
Sigurgeir er bjartsýnn á að sér takist að ljúka sundinu í þetta skiptið. „Maður verður að vera það. Ég er samt meðvitaður um að það getur svo margt skeð og það er ýmislegt sem getur stoppað svona. En við erum búin að undirbúa allt sem við getum undirbúið.“
Sigurgeir stingur sér til sunds á miðnætti. Hann segir það gert til þess að stytta tímann sem hann syndir í myrkri. „Í staðinn fyrir að synda inn í myrkrið og vera þá í öllu myrkrinu þá byrja ég þegar myrkrið er þegar komið.“