Borgarráð hefur samþykkt að skipa viðræðuhóp sem fær umboð til að semja við Tækniskólann um uppbyggingu nýs skóla í Reykjavík.
Í fundargerð borgarráðs kemur fram að Hildur Björnsdóttir hafi lagt fram tillögu um þetta 29. september sem tekin var fyrir á fundinum í dag.
Ebba Schram borgarlögmaður verður formaður hópsins, Haraldur Sigurðsson, deildarstjóri aðalskipulags á umhverfis- og skipulagssviði, og Hörður Hilmarsson, skrifstofustjóri á fjármála- og áhættustýringarsviði, verða einnig í honum.
Hópurinn á að upplýsa borgarráð reglulega um framvindu verkefnisins.
Hópurinn fær skýrt umboð
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins lögðu fram bókun á fundinum þar sem kemur fram að meirihluti borgarstjórnar vinni hörðum höndum að því að stuðla að fjölbreyttu úrvali menntunar- og atvinnutækifæra fyrir borgarbúa.
„Eftirspurn eftir iðn- og verknámi hefur aukist verulega og það skiptir máli fyrir Reykjavík að hér sé öflug menntastofnun sem getur verið flaggskip iðn- og tæknimenntunar, boðið upp á fyrsta flokks námsaðstöðu og menntað fólk til fjölbreyttra starfa sem atvinnulífið þarfnast,“ segir í bókuninni.
Með skipan viðræðuhópsins sé stigið mikilvægt skref í þá átt.
„Hópurinn fær skýrt umboð til að ganga til viðræðna við Tækniskólann og Skólastræti um uppbyggingu nýs Tækniskóla í Reykjavík og mun halda borgarráði reglulega upplýstu um framvindu verkefnisins.“
Uppbygging af þessari stærðargráðu geti orðið mikil lyftistöng fyrir borgarhlutann sem verði fyrir valinu.
„Og skapað þar öflugt umhverfi menntunar, atvinnulífs og nýsköpunar. Reykjavík á að vera borg þar sem fólk getur menntað sig, skapað sér framtíð og fundið fjölbreytt störf,“ segir í lok bókunarinnar.
Mikill áhugi á að fá Tækniskólann
Sveitarfélög úr öllum landsfjórðungum hafa boðið Tækniskólanum lóð fyrir nýjan skóla en stjórnarformaður hans segir óraunhæft að hafa skólann utan höfuðborgarsvæðisins.
Samkomulag við Hafnarfjarðarbæ fór út um þúfur í síðasta mánuði þar sem bærinn stóð ekki við skuldbindingar sínar um að útvega skólanum lóð. Áform um að reisa nýjan Tækniskóla í Hafnarfirði voru fyrst kynnt fyrir fimm árum.