Framhaldsskólanemar í Frakklandi hafa komið saman víða um landið í dag til að mótmæla yfirfullum kennslustofum, skorti á kennurum, slæmu ástandi skólabygginga og miklum hita í kennslustofum þegar hitabylgjur hafa geisað í ár.
Mótmælin hafa staðið síðan í síðustu viku og hafa ekki alltaf farið vel fram. Dæmi eru um að ráðist hafi verið á skólastjóra. Lögregla hefur handtekið hundruð nemenda á aldrinum 15 til 18 ára fyrir óspektir í dag. Ríkisstjórn landsins segir mótmælin hafa breyst í ofbeldi. Forsætisráðherra Frakklands, Sebastien Lecornu, hvatti alla ráðherra til að fresta ferðalögum um landið vegna ástandsins.
Ófremdarástand hefur ríkt og yfir 160 skólum hefur verið lokað. Slökkvilið var kallað út í Nantes eftir að eldur var kveiktur við inngang framhaldsskóla.
Í París, Marseille og víðar hafa háskólanemar slegist í hóp mótmælenda. Mótmælin hófust í úthverfum Parísar og hafa breiðst um landið. Ríkisstjórnin hefur sakað stjórnmálamenn lengst til vinstri á ás stjórnmálanna um að hafa hvatt til mótmælanna.
Óeirðalögregla var kölluð út og þegar er hafin innhússrannsókn hjá henni vegna ásakana um harðræði gegn þremur mótmælendum.
„Við erum að mótmæla yfirfullum kennslustofum og því að ríkisstjórnin verji milljónum í herferðir gegn símanotkun en fjárfesti ekki í húshitun, loftkælingu eða launum kennara,“ sagði einn mótmælenda, 16 ára, í viðtali við AFP í dag.