Rétt eins og á Íslandi eru blaðamenn ekki hlutlausir í Noregi. Sama gerist á Íslandi og það þarf ekki að leita langt til að finna slíka blaðamenn og fjölmiðla til að sjá það.
Frásögn rannsóknar
Ég tel að það þurfi að taka á þessu, því þetta er svo gróft, skrifar Helene Tveten. Samkvæmt Nettavisen eru 33% ungra karla ógn við jafnréttissamfélagið vegna þess að þeir vilja snúa aftur til fyrri tíma. Nettavisen gefur í skin að þeir séu því hægriöfgamenn, án þess að það sé sagt berum orðum. En það er alls ekki það sem rannsóknin segir sem fjölmiðillinn vitnað til.
Rannsóknin segir okkur að þeir ungu menn sem tóku þátt í rannsókninni telja að baráttan fyrir jafnrétti hafi gengið svo langt að þeir séu sjálfir skildir út undan og gleymdir. Að ungu mennirnir hafi misst tilgang sinn í samfélaginu og að þetta fólk upplifi sig ekki lengur sem jafnrétthátt í samfélaginu.
Grein NTB, sem líklega er skrifuð af konu, snýr þessu svo algjörlega á hvolf og gerir meira af nákvæmlega því sem er orsök neikvæðra tilfinninga ungu mannanna. Þeir fá sem sagt ekki að láta í sér heyra, ekki er tekið mark á þeim og þeir ekki teknir alvarlega. Nei, við eigum að hafa áhyggjur af því að þeir séu ógn við femínisma vegna hægriöfgaskoðana sinna.
Alltof langt gengið
Þetta er of langt gengið. Þessir ungu menn eiga að vita að við erum margar konur sem teljum að bæði femínisminn og jafnréttið hafi gengið of langt. Þegar samfélagið var að mestu orðið jafnréttissamfélag á öllum sviðum og allir voru metnir út frá hæfni, þá átti að taka upp kvóta.
Þegar allir voru orðnir jafnir í skólunum, þá átti að veita fleiri námsviðurkennigar. Og þegar því var lokið, þá átti meira að segja að hleypa körlunum inn á kvennasalernin.
Þetta snýst ekki lengur um jafnrétti, heldur um skrímslavæðingu sem hefur ákveðinn tilgang: að brjóta niður fjölskylduna sem stofnun, að brjóta niður hlutverk karla í samfélaginu og að afmá skilin á milli þess sem er karlkyns og þess sem er kvenkyns.
Kynjafræðin er dæmi um fag þar sem markvisst er unnið að þessu. Við höfum séð það í gegnum árin hvernig ákveðnir kvennahópar á Íslandi hafa ráðist gegn karlmönnum, þangað til þeir skilgreina sig konur, þá má ekki snerta þá og þá má bjóða þá velkomna á kvennklósettin.
Þversögn
Það er þversögn, af Chloé Lewis hafi unnið að rannsókninni. Equimundo, sem stendur að rannsókninni, hefur sjálft lýst yfir framsækinni stefnu á sviði LGBTQIA+, kyns, fjölbreytileika og jafnréttis. Sem sagt DEI.
Equimundo lýsir í sjálfu sér sem „intersectional feminist“, það er að segja þverskurðarfemínísk samtök. Þau segjast vinna með LGBTQIA+-hópum, berjast fyrir réttindum kvenna, stúlkna og ,,kynlausum” einstaklingum, vilja „sigrast á tvíhyggju kynjanna“ („overcome the gender binary“) og tengja starf sitt meðal annars við baráttuna gegn hómófóbíu og transfóbíu.
Þau eru einnig með sérstakt Program D sem, samkvæmt þeirra eigin lýsingu, á að „berjast gegn hómófóbíu og stuðla að fjölbreytileika.“ Áætlunin fjallar meðal annars um viðhorf til samkynhneigðar, kynferðislegs fjölbreytileika og staðalímynda um kyn.
Erkióvinur fjölskyldna
Hvað DEI varðar notar Equimundo meira að segja hugtakið sjálft. Þau lýsa „male allyship“, eða stuðningi karla við jafnrétti, sem DEI-verkefni og segjast vinna með fyrirtækjum að jafnrétti á vinnustað. Í ráðningarferli sínu segjast þau auk þess vilja „fjölbreytt og inngildandi vinnuumhverfi“ („diverse and inclusive work environment“) og hvetja meðal annars konur, LGBTQIA+-fólk og aðra svokallaða jaðarhópa til að sækja um.
Þetta fólk er því erkióvinur karla, fjölskyldna og alls þess sem áður var talið fullkomlega eðlilegt.
Helene velt því upp hvort Nettavisen hafi sleppt þessum upplýsingum sem brýtur gegn VVP 3.2 – heimildagagnrýni og breidd heimilda, VVP 4.1 – málefnalegri og nærgætninni umfjöllun, og VVP 4.4 – að fyrirsögn og inngangur eigi sér stoð í efninu.
Ísland og einhliða fréttaflutningur
Bæði hér heima og annars staðar í heiminum hlýtur krafa lesenda að vera sú að rétt sé farið með þegar sagt er frá í fjölmiðlum. Skiptir engu hver miðillinn er. Mikill misbrestur er á þessu hér á landi og má þar nefna Ruv, Vísi, DV og aðra smáa miðla sem eru með einhliða fréttaflutningi og visa til heimilda sem eiga ekki við rök að styðjast. Stundum visa þau til heimilda hvort frá öðru, líka þeim sem byggt er á sögusögnum.
Það er ástæða fyrir minnkandi trausti á fjölmiðlunum og það er þeim sjálfum um að kenna.
Byggt á skrifum: Folkets Stemme – Politikk & Nyheter | Facebook