Samtal og samkennd er yfirskrift forvarnardagsins sem er í dag. Í ár er sjónum beint sérstaklega að nemendum í 9. bekk grunnskóla og öllum nemendum í framhaldsskóla.
Hvetja ungt fólk til umhugsunar um eigin lífsstíl og framtíð
Ingibjörg Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Fornvarnardagsins hjá embætti landlæknis, segir markmiðið með deginum að vekja athygli á mikilvægum verndandi þáttum sem geta aukið vellíðan og lýðheilsu ungmenna, og hvetja þau til umhugsunar um eigin lífsstíl og framtíð.
Samkvæmt rannsókn sem var kynnt í Lýðheilsuvísi embættis landlæknis í síðasta mánuði meta 43% framhaldsskólanema andlega heilsu sína slæma.
„Við höfum fengið í gegnum tíðina frá bæði nemendum og kennurum að við ættum að leggja meiri áherslu á hvað er hægt að gera til að hjálpa okkur að líða betur, heldur en að vera alltaf að segja okkur hvað það er sem lætur okkur líða illa. Og það er það sem við höfum verið að reyna núna síðustu ár,“ segir Ingibjörg.
Áskoranir ungs fólks hafi breyst
Embætti landlæknis skipuleggur daginn ásamt fleirum, svo sem embætti forseta Íslands, Reykjavíkurborg, Rannsókn og greiningu, Planet Youth, Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, Ungmennafélagi Íslands, Samfés, Bandalagi íslenskra skáta, ríkislögreglustjóra og Heimili og skóla.
Þetta er í tuttugasta og fyrsta sinn sem Forvarnardagurinn er haldinn.
Ingibjörg segir þær áskoranir sem blasi við ungu fólki í dag hafa breyst töluvert síðustu ár. Samfélagsmiðlar spili þar stóran þátt. Hún segir verkefnið ærið. Framhaldsskólum og 9. bekk grunnskóla standi til boða að taka þátt í verkefnavinnu sem standi út mánuðinn.
„Það eru glærur og leiðbeiningar sem kennarar hafa allan mánuðinn til að vinna með nemendum sínum,“ segir Ingibjörg.
Embætti landlæknis rýni svo niðurstöðurnar sem settar verði í skýrslu.
„Það er rosalega áhugavert að heyra svörin þeirra og það sem þau hafa verið að segja okkur í þessari hópavinnu. Og þau kalla á fullorðna fólkið að styðja þau, vera með þeim í þessu, vera fyrirmyndir. Og ég held að þetta sé eitthvað sem við megum taka til okkar.“