Það eru nú einhverjir mestu umbrotatímar í seinni tíð og því tímabært að hefja samtal um hvernig samfélagi við viljum búa í. Þetta segir forseti Íslands sem segir ekki ganga að fylgjast aðgerðalaus með á samfélagsmiðlum, áskoranir blasi við.
Hvernig samfélag viljum við skapa saman?
Forseti Íslands á frumkvæði að samtali laugardaginn 10. október til að ræða spurninguna: Hvernig samfélag viljum við skapa saman? Markmiðið er að skapa vettvang þar sem fólk á öllum aldri kemur saman til að hlusta og tala saman. Samtalið fer fram um allt land og er hægt að velja sinn uppáhaldsstað. Allar upplýsingar má finna inná talasaman.is.
„Við erum á mestu umbrotatímum sem ég man eftir á mínum líftíma og ég held að það leynist engum að áskoranir eru víða en við höfum val við getum lyft okkur upp og spurt okkur hvernig viljum við að gervigreindin þjóni mannkyni en ekki öfugt. Hvernig viljum við áfram búa í friðsamlegu samfélagi, hvernig viljum við að orðræðan í samfélaginu sé,“ segir Halla Tómasdóttir forseti Íslands í viðtali við fréttastofu á Bessastöðum í morgun.
Nota gervigreindina til góðs
Nú verði, segir Halla, samfélagið að staldra við, spyrja, hlusta, ræða hvernig við eflum traustið og setja samtal, frið, von og framtíðina á dagskrá. Gervigreindin megi ekki ógna samfélaginu á sama tíma og stríð og átök ógni heimsfriði. „Markmiðið núna er að nota gervigreindina til góðs taka saman hvað kemur úr samtölum sem að munu eiga sér stað um allt land og allir geta tekið þátt í, bara skrá sig á talasaman.is - unga fólkið býður og opnar framhaldsskóla landsins til þess að leiða þessi samtöl,“ segir Halla Tómasdóttir. Hún segir vonina vaxa með virkri þátttöku en það dragi verulega úr henni ef við erum á hliðarlínunum og séum bara að fylgjast með erfiðri umræðu á samfélagsmiðlum.
40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða
Samtalið ber upp á þann dag þegar 40 ár eru liðin frá leiðtogafundinum í Höfða, þegar forseti Bandaríkjanna og leiðtogi Sovétríkjanna hófu afdrifaríkt samtal. Halla var þá sjálf skiptinemi í Bandaríkjunum og hafði fram að því aðallega verið spurð hvort Íslendingar byggju í snjóhúsum eða hvort Ísland væri ríki í Bandaríkjunum. „Þennan dag breyttist allt því á sjónvarpsskjám og forsíðum allra fjölmiðla var mynd af konu í rauðri kápu sem gekk við hliðina á Reagan bandaríkjaforseta og allt í einu fékk ég spurninguna, er kona forseti á Íslandi?“ sagði Halla Tómasdóttir. Samtalið fer fram laugardaginn 10. október og niðurstöður verða kynntar sunnudaginn 11. október. Lesa má allt um atburðinn inná talasaman.is.