28 starfsmönnum Klettabæjar var sagt upp störfum í vikunni. Jóhanna M. Fleckenstein, framkvæmdastjóri og annar af tveimur eigendum Klettabæjar, segir að uppsagnirnar séu tilkomnar vegna þess að samningar um þjónustu við þrjá íbúa renna út um áramót og verða ekki endurnýjaðir. Þess í stað fá íbúarnir, sem allir eru fullorðnir, inni í framtíðarúrræðum á vegum þeirra sveitarfélaga þar sem þeir eiga lögheimili.
„Það var skammur fyrirvari á þessu. Það er alltaf lokamarkmið okkar að þau útskrifist og þau séu örugg til framtíðar. Þetta eru yfirleitt einstaklingar með langvarandi stuðningsþarfir,“ segir Jóhanna í samtali við fréttastofu.
Starfsfólkið sem missir vinnuna var í misjöfnu starfshlutfalli.
Klettabær er einkarekið úrræði og þar dvelja þjónustunotendur á grundvelli samninga milli lögheimilissveitarfélaga þeirra og Klettabæjar. Þar er boðið upp á þjónustu fyrir börn, ungmenni og fullorðna sem hafa þörf fyrir einstaklingsmiðaða þjónustu og sértækan stuðning. Þar starfa um 500 starfsmenn í mismunandi starfshlutfalli.