Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, Volker Turk, brýnir fyrir stjórnvöldum í Tennessee í Bandaríkjunum að reyna ekki aftur að taka Christu Pike af lífi. Hún er á dauðadeild fangelsis í ríkinu og lifði af tvær aftökutilraunir í gær.
Alríkisdómstóll fyrirskipaði að aftökunni skyldi frestað tímabundið í ljósi þess að hún var enn á lífi eftir að hafa verið sprautuð tvisvar sinnum með eitri sem notað er við aftökur.
„Mál Christu Pike sýnir glögglega hvers vegna ætti að afnema dauðarefsingu,“ segir Turk í yfirlýsingu á X. „Langvarandi þjáningar, andlegar og líkamlegar, sem hljótast af ítrekuðum misheppnuðum tilraunum til aftöku eru grimmilegar. Auk þess er ýmsum spurningum um réttláta málsmeðferð ósvarað.“
Þá hvetur mannréttindastjórinn yfirvöld í Tennessee til þess að falla frá áformum um að reyna aftur að taka Pike af lífi. Í færslu sinni sagði Turk áhyggjuefni að Bandaríkin væru farin að beita dauðarefsingu í meira mæli en áður.
Yfirvöld í Tennessee hafa ákveðið að ekki verði reynt aftur á þessu ári að lífláta Pike.
Pike var dæmd til dauða fyrir manndráp ásamt kærasta sínum í Knoxville í Tennessee árið 1995. Þá var hún 18 ára en kærasti hennar 17 ára. Hann fékk því vægari dóm, lífstíðardóm með möguleika á skilorði. Þau voru sakfelld fyrir að bana 19 ára gamalli konu, Colleen Slemmer. Þau höfðu öll verið saman í þjálfunarbúðum fyrir ungmenni. Pike er í dag fimmtug.