Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að maður sem ákærður er fyrir brot í nánu sambandi víki út dómsal á meðan brotaþoli ber vitni. Brotaþoli er fyrrverandi eiginkona mannsins. Krafa konunnar er studd þeim rökum að meint brot mannsins gegn henni séu alvarleg og hún sé með áfallastreituröskun og kvíða. Hún sæki tíma hjá sálfræðingi sem telji nærveru ákærða grafa undan getu hennar til að segja satt og rétt frá. Vísar konan í vottorð sálfræðingsins kröfu sinni til stuðnings.
Hótaði að senda menn á eftir stjúpsyni sínum