Krónutölugjöld og gjaldskrár ríkisins hækka um 2,5% um áramót en ekki um 5,2% eins og ráð var fyrir gert í fjárlagafrumvarpi næsta árs. Þessu greindi Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra frá á ársfundi Samtaka atvinnulífsins.
Aðilar vinnumarkaðarins og stjórnarandstaðan hafa deilt hart á ríkisstjórnina fyrir áform hennar um að hækka gjöldin í samræmi við verðbólguspár frekar en að miða við annað, svo sem verðbólgumarkmið Seðlabankans.
Kristrún sagði á fundi Samtaka atvinnulífsins í dag að hún ætli á morgun að fara fyrir ríkisstjórn með aðgerðalista og tillögu að yfirlýsingu ríkis, Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um næstu skref til að verja kjarasamninga. Með þessu eigi að ná verðbólgu niður og skapa aðstæður fyrir vaxtalækkun.
„Þetta er gert með afmörkuðum aðgerðum – án þess að auka kostnað fyrirtækja eða ógna markmiði um hallalaus fjárlög.“
Kristrún fagnaði því að sveitarfélögin hefðu samþykkt á landsþingi sínu að halda hækkunum á gjaldskrám innan við 2,5% á næsta ári.
„Og að sjálfsögðu er ríkisstjórnin reiðubúin að gera slíkt hið sama ef allir gera sitt og samningar halda – með því að takmarka hækkanir á almennum krónutölugjöldum og á gjaldskrám ríkisstofnana við 2,5% og með tilmælum til fyrirtækja í eigu ríkisins.“
Kristrún sagði að fyrirheitið um 2,5% gjaldahækkanir hefði verið á borðinu í þríhliða samtali stjórnvalda, verkalýðshreyfingarinnar og atvinnurekenda í sumar en að þá hefði ekki náðst samkomulag um aðgerðir.
Næsta stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans er á miðvikudag og frestur til að segja upp kjarasamningi er á fimmtudag.
Fréttin hefur verið uppfærð.