Landsréttur hefur dæmt ummæli Pálínu Helgu Þórarinsdóttur, sem birtust sem athugasemd á Facebook við deilingu á frétt af Vísir.is, 22. mars 2022, dauð og ómerk. Ummælin voru eftirfarandi: „þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ – og birtust sem andsvar við athugasemdinni „Áfram Ingó.“Ummælin voru um tónlistarmanninn Ingólf Þórarinsson en Pálína þarf að greiða honum 350 þúsund krónur í miskabætur, auk málskostnaðar upp á 1,8 milljónir króna.
Pálína sakfelld fyrir meiðyrði gegn Ingó Veðurguð