Landsréttur hefur snúið við dómi héraðsdóms og gert konu að greiða Ingólfi Þórarinssyni, betur þekktum sem Ingó Veðurguð, miskabætur vegna ummæla sem hún lét falla við frétt sem deilt var á Facebook.
Ingó fór í mál við konuna vegna þess sem hann taldi ærumeiðandi ummæli. Fréttinni var deilt á Facebook-síðu Vísis í mars 2022 og hafði fyrirsögnina „Ingó segist ekki hafa neinu að tapa“. Í fréttinni var fjallað um grein sem Ingó hafði ritað vegna fjölda ásakana gegn honum um kynferðisofbeldi.
Annar notandi skrifaði athugasemd þar sem stóð „Áfram gakk Ingó minn“ og konan brást við þeim ummælum með að skrifa „þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“.
Í dómi Landsréttar segir að í málinu vegist á ólík stjórnarskrárvarin réttindi: friðhelgi einkalífs annars vegar og tjáningarfrelsi hins vegar. Landsréttur féllst á með Héraðsdómi að samfélagsumræðan sem ummælin vörðuðu hafi verið mikilvæg og átt erindi við almenning með því að draga fram í dagsljósið umfang og alvarleika kynferðislegrar áreitni og kynbundins ofbeldis.
Þá hafi Ingó sjálfur tekið þátt í umræðunni með því að skrifa greinina sem frétt Vísis fjallaði um og ummælin voru látin falla við.
Landsréttur féllst hins vegar ekki á það með héraðsdómi að ummælin hefðu falið í sér gildisdóm fremur en staðhæfingu um staðreynd. Í dómi Landsréttar segir að Ingó hafi staðfastlega neitað sök og hvorki verið dæmdur né ákærður fyrir kynferðisbrot eða ofbeldi.
Landsréttur dæmdi ummæli konunnar dauð og ómerk og gerði henni að greiða Ingó 350 þúsund krónur í miskabætur.