Mikil vinna var lögð í fyrstu niðurstöður endurskoðaðs áhættumats í Grindavík sem birt var í síðustu viku. Skarphéðinn Berg Steinarsson verkefnisstjóri forsætisráðuneytisins í málefnum Grindavíkur segir áhættumatið í sífelldri endurskoðun. Áhættumatið grundvallast á hættumati Veðurstofunnar, kringumstæðum á vettvangi og mótvægisaðgerðum.
„Og allt þetta breytist stöðugt. Og það er áskorunin að vera þá sífellt að fylgjast með og endurbæta áhættumatið,“ segir Skarphéðinn.
Alvarlegasta sviðsmyndin í áhættumatinu er eldgos innan bæjar eins og varð 14. janúar 2024. Sú staða er talin ásættanleg, segir í matinu, miðað við að Veðurstofan gefi út viðvörun með meira en hálftíma fyrirvara og að hægt sé að rýma bæinn á einni klukkustund og fimmtán mínútum.
Veður getur sett strik í reikninginn því sumar mælingar, sem Veðurstofan styðst við, geta gert vöktun erfiða í vondu veðri.
Sara Barsotti deildarstjóri eldfjallavár á Veðurstofunni bendir á á vef Veðurstofunnar í dag að skoða þurfi vel til hvaða mótvægisaðgerða verður gripið ef aðstæður séu þannig að ekki sé hægt að gefa út viðvörun tímanlega.
Sumar mótvægisaðgerðir eru tilbúnar, en ýmislegt vantar ennþá, segir Skarphéðinn, og verið er að bæta við:
„Það eru merkingar, ýmislegt sem snýr að snjóruðningi og að halda öllum leiðum opnum við allar kringumstæður. Sveitarfélagið er sannarlega með fjölmargt af þessu. Ríkið er með eitthvað, einkaaðilar, félagasamtök. Það eru mjög margir sem koma að þessu.“
Grindavíkurbær ber ábyrgð á utanumhaldi innanbæjar eins og skólahaldi og umferð barna. Ætlunin er að þar verði umfangsmikið íþrótta- og æskulýðsstarf utan skólatíma fyrir börn:
„Áður en þau síðan fara til foreldra sinna. Þannig sé þetta brúað og þetta er hluti af mótvægisaðgerðunum sem verið er að fara í og bærinn er að standa sig mjög vel í því.“
Fjármögnun margra mikilvægra verkefna og stjórnsýsla þeirra er ókláruð. Búsetan er eitt aðalmálið það er hvort og hvenær fleiri geti flutt til Grindavíkur
„Allt sem viðkemur því að fólk geti bara snúið aftur til Grindavíkur ef að það hentar þeim og það er vilji til,“ segir Skarphéðinn Berg Steinarsson.