Til stendur að hætta útgáfu dvalarleyfa til fólks utan EES sem kemur til Íslands í vistráðningu, það er sem au-pair. Markmiðið er að koma í veg fyrir misnotkun. Þetta kemur fram í drögum dómsmálaráðherra að breytingu á útlendingalögum. Drögin hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.
Í greinargerð segir að vistráðnir séu jafnan ungir að árum og án tengslanets, háðir einni fjölskyldu um húsnæði, fæði, greiðslur og dvalarleyfi. Þeir sinni oft heimilis- og ummönnunarstörfum utan kjarasamninga og eftirlit með aðstæðum sé erfitt. Vísbendingar séu um að fólk hafi verið misnotað.
766 dvalarleyfi vegna vistráðningar voru veitt á árunum 2017 til 2024. Mikill meirihluti, eða 78%, til ríkisborgara Filippseyja.
Horft til annarra Norðurlanda
Meginmarkmið breytinganna eru að færa umgjörð dvalarleyfa nær því sem tíðkast á öðrum Norðurlöndum, styrkja grunnskilyrði fyrir veitingu dvalarleyfa og skapa heildstæðari umgjörð um öryggisþætti við meðferð umsókna.
Leggja á aukna áherslu á örugga auðkenningu umsækjenda og mat á áreiðanleika þeirra gagna sem umsóknir byggjast á. Samhliða því er lagt til að réttarstaða þolenda mansals og alvarlegra vinnumarkaðsbrota sem og annarra einstaklinga í sérstaklega viðkvæmri stöðu verði styrkt.
Lengri búseta skilyrði fyrir varanlegu dvalarleyfi
Til stendur að þrengja skilyrði fyrir fjölskyldusameiningum. Lágmarksaldur sambúðarfólks verður 24 ár fyrir bæði, líkt og tíðkast í Noregi og Danmörku, í stað 18 nú. Skilyrðinu er ætlað að vernda gegn þvinguðum hjónaböndum og málamyndahjúskap.
Þá þarf sérstakt, þrengra leyfi til að foreldrar 67 ára og eldri fái dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Fyrir því þurfa að vera knýjandi ástæður, til dæmis ummönnunarþörf eða ef engir aðrir nánir aðstandendur eru í heimaríki. Þá þarf húsnæði að geta rúmað alla í fjölskyldunni til að af sameiningu geti orðið.
Til að fólk fái ótímabundið dvalarleyfi þarf það að hafa dvalið sex ár samfellt á Íslandi í stað fjögurra nú, nái lögin fram að ganga. Umsækjandi má ekki vera í vanskilum með skatta, opinber gjöld eða sektir. Þá þarf umsækjandi að geta sýnt fram á trygga framfærslu.