Andleg heilsa er eitt af stærstu umræðuefnum unglingsáranna og mikilvægt að tala um erfiðu hlutina. Þetta segja ungmenni sem tóku þátt í setningu Forvarnardagsins í Verslunarskóla Íslands.
Forvarnardagurinn mikilvægur
Yfirskriftin í ár er Samtal og samkennd og er sjónum beint að unglingum í 9. bekk grunnskóla og nemendum framhaldsskóla, en þetta er í tuttugasta og fyrsta sinn sem Forvarnardagurinn er haldinn.
Markmiðið er að vekja athygli á mikilvægum þáttum sem geta aukið vellíðan og lýðheilsu ungmenna.
„Mér finnst það skipta máli, sérstaklega til að vekja athygli á því hvernig unglingar fá vímuefni og drekka og hvernig andleg heilsa þeirra er, til að til dæmis fullorðna fólkið fatti hvað þetta er mikilvægt málefni,“ segir Edda Sól Óladóttir, 16 ára nemi í Verslunarskóla Íslands.
Kastljósið á samtalið og andlega líðan ungmenna
Embætti landlæknis skipuleggur daginn ásamt embætti forseta Íslands, Reykjavíkurborg, Samfés og fleirum.
Kastljósinu í ár er meðal annars beint að samtalinu og andlegri líðan ungmenna. Samkvæmt Lýðheilsuvísi embættis landlæknis í síðasta mánuði meta 43% framhaldsskólanema andlega heilsu sína slæma.
Pétur Leó Guðjónsson, 14 ára nemi í Réttarholtsskóla, telur mikinn meirihluta þeirra stráka.
„Því eins og þú sérð á samfélagsmiðlum er mikið um að strákar eigi bara ekki að gráta og tala um tilfinningar sínar og eigi að vera mjög harðir.“