Formenn Samtaka atvinnulífsins og ASÍ eru sammála um að skilaboð forsætisráðherra séu skref í rétta átt og hjálpi til við samningaborðið. Forsætisráðherra boðaði í dag aðgerðir til að koma í veg fyrir átök á vinnumarkaði með því meðal annars að draga úr boðuðum gjaldskrárhækkunum. Hvort það dugi til að koma í veg fyrir að kjarasamningar haldi verði að koma í ljós.
„Það sem upp á vantar er að Samtök atvinnulífsins skila algjörlega auðu,“ segir Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ.
„Þetta eru kjarasamningar verkalýðshreyfingarinnar og Samtaka atvinnulífsins og endurskoðunin snýr að því. Þannig að Samtök atvinnulífsins verða að koma fastar inn í þetta en það hjálpar alveg klárlega það sem ríkisstjórnin er að leggja inn í þetta.“
Brugðið geti til beggja vona
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, segir að brugðið geti til beggja vona. „Fyrirtækin hafa komið hreint fram. Við höfum greint stöðuna. Að hluta til hefur það verið gert í ágætu samstarfi við stjórnvöld,“ segir Bjarni.
Bjarni segir að SA hafi bent á opinberar upplýsingar um að ekkert sé að sækja til atvinnustarfseminnar í landinu við þessar aðstæður.
„Hvort það sé svar sem verkalýðshreyfingin getur lifað með, það veit ég ekki. En verkalýðshreyfingin þarf auðvitað að horfast í augu við staðreyndir,“ segir Bjarni.
Stífar viðræður hafa verið milli stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins eftir að forsenduákvæði kjarasamninga virkjaðist og hafa verkalýðsfélögin frest til áttunda október til að segja upp kjarasamningum.
Á ársfundi Samtaka atvinnulífsins í Hörpu tilkynnti forsætisráðherra að hún hyggist á ríkisstjórnarfundi á morgun leggja fram tillögu að sameiginlegri yfirlýsingu ríkis, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins um næstu skref til að verja kjarasamninga.
Hún felur meðal annars í sér að gjaldskrárhækkanir um áramót verði 2,5% en ekki 5,2% eins og fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir. Aðrar tillögur snúi meðal annars að húsnæðismarkaði.
„Þetta er að minnsta kosti í boði af okkar hálfu en við viljum auðvitað sjá samstillt átak. Við viljum auðvitað að kjarasamningar haldi, við viljum að atvinnurekendur komi með, sveitarfélögin líka," segir Kristrún Frostadóttir.
„Þau hafa sagt að þau geri það ef ríkið komi með þannig að það er að þrengjast hringurinn.“
Duglegir að gagnrýna fyrirhugaðan bankaskatt
Forsvarsmenn SA og fleiri sem tóku til máls á fundi samtakanna í dag voru duglegir að gagnrýna fyrirhugaðan bankaskatt og auknar álögur á ferðaþjónustu í fjárlagafrumvarpinu. Þær áætlanir standa óhaggaðar.
Kristrún segir að ekki sé verið að skoða sérstaklega að bakka með skatta- eða tekjutillögur hjá ríkisstjórninni. „Þær tillögur sem ég er að kynna eiga að halda okkur réttu megin við núllið. Við erum ekki tilbúin að bakka með hallalausu fjárlögin,“ segir Kristrún.