Maður er ákærður fyrir nauðgun, frelsissviptingu og sérstaklega hættulega líkamsárás gagnvart konu. Atvik málsins urðu frá laugardegi til sunnudags einhvern tíma á árinu 2023, í íbúð í Hafnarfirði. Þar er maðurinn sagður hafa frelsissvipt konuna í nokkrar klukkustundir og án samþykkis haft við hana samræði og önnur kynferðismök.
Réttarhöld framundan yfir manni sem ákærður er fyrir að nauðga konu og hrinda henni fram af stigapalli