Skotárásin átti sér stað við nemendahúsnæði háskólans. Staðfest hefur verið að einn hinna særðu sé yngri en átján ára og að einn hinna særðu sé nemandi við skólann.
Lögregla kom á staðinn klukkan 13:28 að staðartíma eða klukkan 17:28 að íslenskum tíma. Enn hefur enginn verið handtekinn í málinu en grunur leikur á að fleiri en einn hafi verið að verki. Sem stendur liggur enginn hinna fimm særðu undir grun heldur eru þeir taldir fórnarlömb skotárásarinnar.
Nemendur háskólans hafa, í sögulegu samhengi, flestir verið þeldökkir en skólinn var stofnaður á tíma þar sem aðskilnaður milli kynþátta ríkti enn innan menntastofnana í Bandaríkjunum. Skólinn er í dag opinn fyrir umsóknum nemenda, óháð kynþætti.
Til hafði staðið að kennsla hæfist í skólanum á mánudaginn eftir sumarleyfi. Ekki er vitað hvort að atburðurinn hafi áhrif á fyrirætlanir skólans. Rúmlega fimm þúsund nemendur sækja nám við háskólann sem er staðsettur um þrjátíu kílómetra norður af Richmond, höfuðborg Virginíuríkis Bandaríkjanna.