Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á fjórða tímanum vegna manns sem féll við Hestfjall í Borgarfirði.
Þyrlan er nú á staðnum og til stendur að hífa manninn um borð. Hann verður þá fluttur til Reykjavíkur.
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, staðfestir þetta við fréttastofu. Upplýsingar um líðan mannsins eru ekki fyrir hendi.