Stiklusúpa: Sturlað leikja­haust og vetur í vændum - Vísir

Stiklusúpa: Sturlað leikja­haust og vetur í vændum - Vísir

Stiklusúpa: Sturlað leikja­haust og vetur í vændum - Vísir

Við getum þó huggað okkur við það að haustið er yfirleitt alltaf, stundum, besti tími ársins til að spila tölvuleiki. Þetta haust virðist ætla að vera sérstaklega gott, ef maður á að segja eins og er.

Það sem lyftir haustinu á hærra stig er að GTA 6 er loksins að koma út. Alheimurinn hefur beðið eftir þeim leik um árabil en útgáfu hans hefur nokkrum sinnum verið frestað.

Hér að neðan verður stiklað á stóru yfir efnilega leiki sem koma út í haust og í vetur. Aftur, ég er að stikla á stóru því það er fullt af efnilegum leikjum að koma út í haust og í vetur.

Fyrst er þó stiklusúpa frá því í janúar.

Star Wars Zero Company

Við byrjum upptalninguna á nýjasta Star Wars leiknum, sem heitir Zero Company. Það er herkænskuleikur í anda X-Com leikjanna en blaðamenn sem hafa fengið að prófa hann á undanförnum dögum tala vel um hann.

Leikurinn gerist á tímum klónastyrjaldarinnar og setur spilara í hlutverk stjórnenda sérstakrar hersveitar sem þarf að berjast gegn nýrri og stórhættulegri ógn.

Star Wars: Zero Company kemur út þann 27. ágúst á PlayStation 5, Xbox og PC.

The Blood of Dawnwalker

Hópur fyrrverandi starfsmanna CD Projekt Red, sem er hvað þekktast fyrir Witcher-leikina og Cyberpunk 2077, myndaði nýtt fyrirtæki sem kallast Rebel Wolves. Það gerðu þeir til að gera leikinn The Blood of Dawnwalker.

Sá leikur gerist á fjórtándu öld í Austur-Evrópu þar sem hópur vampíra herjar á íbúa og hefur í raun tekið yfir stjórn svæðisins. Spilarar setja sig í spor ungs manns sem öðlast krafta vampíra, að hluta til, og hefur þrjátíu daga og nætur til að ná tilteknum markmiðum.

Það geta spilarar gert með því að taka vampíruhluta unga mannsins fagnandi eða halla sér þess í stað að mannlega eðli hans.

Spilun þessa leiks virðist eiga að vera nokkuð óhefðbundin og veltur framvindan mjög á þeim ákvörðunum sem spilarar taka. Tíminn líður ekki með hefðbundnum hætti í leiknum heldur verður dagur að kvöldi, eða kvöld að morgni, þegar spilarar ljúka verkefnum eða ná ákveðnum áföngum.

Í rauninni eiga spilarar að geta bjargað fjölskyldu sinni innan þrjátíu daga og jafnvel mjög snemma. Takist þeim ekki að gera það, felur það ekki í sér að leikurinn sé hreinlega búinn. Þess í stað breytist hann, ef marka má nýlega kynningu á leiknum.

The Blood of Dawnwalker kemur út þann 3. september á PlayStation 5, Xbox og PC.

Marvel's Wolverine

Næsti stóri leikur haustsins er Marvel's Wolverine, sem fjallar um hinn viðkunnarlega en skapfúla Jarfa. Sá er oft minnilaus X-karl sem klórar fólk í spað en leikurinn gerist að vísu áður en X-Men verða til.

Þess í stað starfar Jarfi með Sabertooth og Mystique.

Þessi blóðugi leikur er gerður af Insomniac, þeim sömu og gerðu Spider-Man leikina frábæru. Wolverine gerist þó ekki í opnum heimi eins og leikirnir um Kóngulóarmanninn heldur er þetta línulegur hasarleikur.

Marvel's Wolverine kemur út þann 15. september á PlayStation 5.

Warhammer 40,000: Dawn of War 4

Einn af efnilegu leikjunum í haust er herkænskuleikurinn Warhammer 40,000: Dawn of War 4.

Ofurmennskir geimlandgönguliðar berjast við Orka og Necrons um plánetuna Kronus. Þetta hljómar allt eins og mikið fjör.

Warhammer 40,000: Dawn of War 4 kemur út þann 17. september á PC.

Control Resonant

Remedy er að gefa út nýjan Control-leik í haust. Hann kallast Control Resonant en virðist nokkuð frábrugðinn fyrri leiknum, ef marka má stiklur.

Aðalpersónan að þessu sinni er Dylan Faden, bróðir Jesse, forstjóra hinnar dularfullu alríkisstofnunar sem leikurinn er kenndur við. Jesse er týnd og mygla úr öðrum víddum og afmyndaðar manneskjur úr Elsta húsinu sem hýsir Control-stofnunina flæða út á götur New York-borgar.

Sérstaklega spennandi verður að sjá hvort og hvernig Remedy heldur áfram að tengja Control-heiminn við Alan Wake-leikina sem stúdíóið er helst þekkt fyrir. Rithöfundurinn niðurlúti birtist í aukaefni með upphaflega Control-leiknum og bæði Faden-systkinin skutu upp kollinum í aukaefni með Alan Wake 2.

Control Resonant kemur út þann 24. septemer á PlayStation 5, Xbox og PC.

Gears of War: E-Day

Í október lítur nýr Gears of War leikurinn dagsins ljós. Þessi nýjasti leikur fjallar um upphaf innrásar (upprásar?) Locust hjarðarinnar og baráttu þeirra Marcus Fenix og Dom Santiago, sem þeir sem spiluðu gömlu leikina ættu að kannast við.

Margir eiga eflaust eftir að geta misst sig aðeins í nostalgíunni við spilun leiksins, sem býður upp á gamaldags split-screen, þar sem tveir geta spilað sig gegnum sögu leiksins á sama skjánum.

Gears of War: E-Day kemur út þann 6. október á Xbox og PC.

Call of Duty: Modern Warfare 4

Ég var ekki alveg viss um að nýr Call of Duty leikur ætti heima hérna, þar sem þeir koma út á hverju einasta ári, eða svo gott sem. Núna er Infinity Ward, sem gerir bestu COD-leikina að taka fyrir hvernig nútíma stríð gæti litið út á Kóreuskaganum.

Nýjum leik fylgja svo auðvitað miklar breytingar á Warzone, sem er enn mikið spilaður út um allan heim.

Call of Duty: Modern Warfare 4 kemur út þann 23. október á PlayStation 5, Xbox og PC.

Grand Theft Auto 6

Þá komum við að því sem allir og ömmur þeirra eru að bíða eftir. Nýjasta GTA-leiknum frá árinu 2013. Tvö. Þúsund. Og. Þrettán. Það var bókstaflega í gamla daga!

Nýi leikurinn gerist í Vice City, sem er GTA-útgáfa af Miami. Sú borg var síðast heimsótt í leiknum GTA: Vice City, sem kom út árið 2002.

Eins og í GTA 5 verður hægt að spila fleiri en eina persónu en leikurinn mun fjalla um þau Jason og Luciu. Að öðru leyti er ekki mikið vitað um leikinn sjálfan.

Sjá einnig: Fresta GTA 6 aftur og um hálft ár

Síðasta stikla leiksins kom út í maí í fyrra. Það er nánast líka í gamla daga en von er á nýrri og ítarlegri umfjöllun um leikinn þann 27. ágúst.

Það er áhugavert að segja frá því að Netflix hefur keypt sex klukkustunda forskot á þá stiklu og umfjöllun. Því verður fyrst hægt að horfa á það efni á Netflix, áður en það verður aðgengilegt annarsstaðar.

Grand Theft Auto 6 kemur út þann 19. nóvember á PlayStation 5 og Xbox.

Aðrir efnilegir og væntanlegir leikir sem koma út í haust eru til dæmis Silent Hill: Townfall, Ace Combat 8: Wings of Theve, Star Wars: Galactic Racer og jafnvel Valor Mortis.

Seinna í vetur eiga svo nokkrir efnilegir leikir að líta dagsins ljós. Má þar nefna leiki eins og Metro 2039, God of War Laufey og Fable 4. Þá er einnig útlit fyrir að við munum fá frekari upplýsingar um sjöunda leikinn í Elder Scrolls seríunni.

#leikjahaust #stiklusúpa #sturlað #vetur #vændum


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262920969d/stiklusupa-sturlad-leikjahaust-og-vetur-i-vaendum

📰 Aðrar fréttir

Yfirlæknir og deildarstjóri: „Við skorum á aðstandendur Kveiks að gera nýjan þátt“
📅 01.10.2026 👁️ 0
Yfirlæknir og deildarstjóri: „Við skorum á aðstandendur Kveiks að gera nýjan þátt“
Yfirlæknir og deildarstjóri á Landspítala gera athugasemdir við þátt Kveiks á RÚV þar sem fjallað var um notkun sterkra geðlyfja á hjúkrunarheimilum. ...
Matthías Már með krabbamein: „Barátta sem við ætlum að sigra“
📅 01.10.2026 👁️ 0
Matthías Már með krabbamein: „Barátta sem við ætlum að sigra“
Matthías Már Magnússon, útvarpsmaður og dagskrárstjóri Rásar 2, greinir frá því á Facebook-síðu að hann hafi greinst með krabbamein á dögunum. Fram un...
Össur hjólar í Hildi og kallar hana „prinsessuna á bauninni“ – Sakaður um „aumkunarverða“ karlrembu
📅 01.10.2026 👁️ 0
Össur hjólar í Hildi og kallar hana „prinsessuna á bauninni“ – Sakaður um „aumkunarverða“ karlrembu
Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, fer hörðum orðum um Hildi Sverrisdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, í pistli á Facebook-s...
Jónas Már gagnrýnir dýrt klúður Kópavogsbæjar í Kórnum – „Mikill asi var í kringum afgreiðslu málsins“
📅 01.10.2026 👁️ 0
Jónas Már gagnrýnir dýrt klúður Kópavogsbæjar í Kórnum – „Mikill asi var í kringum afgreiðslu málsins“
Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingar í Kópavogi, gagnrýnir klúðrið varðandi útboð knattspyrnustúku við Kórinn. Algjör óvissa ríkir um framhaldið o...
„Það er sannar­lega ó­þarfi að mygla inni“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
„Það er sannar­lega ó­þarfi að mygla inni“ - Vísir
Hjörleifur Björnsson skrúðgarðyrkjufræðingur, einn eigendanna, leggur áherslu á að hugsa um garðinn og fasteignina í heild. Mikilvægasta verkið sé nef...
Leggst gegn eigin stólakaupum: „Ég hef sjálf setið makindalega í þeim í átta ár“
📅 01.10.2026 👁️ 0
Leggst gegn eigin stólakaupum: „Ég hef sjálf setið makindalega í þeim í átta ár“
Leggst gegn eigin stólakaupum: „Ég hef sjálf setið makindalega í þeim í átta ár“ Borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur, Hild­ur Björns­dótt­ir, leggst gegn stó...
Taxý Hönter segir „Dýrlinginn“ hafa reynt að lokka ungar stúlkur upp í bíl
📅 01.10.2026 👁️ 0
Taxý Hönter segir „Dýrlinginn“ hafa reynt að lokka ungar stúlkur upp í bíl
Friðrik Einarsson, betur þekktur sem Taxý Hönter, segist hafa séð leigubílstjórann Saint Paul Edeh, sem hann kallar „Heilagan Pál“ eða „Dýrlinginn“, r...
Matthías Már með krabba­mein - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Matthías Már með krabba­mein - Vísir
Matthías greindi frá tíðindunum á Facebook nú í morgun. „Fyrir tveim vikum endaði ég á Bráðamóttökunni sökum orkuleysis, var einhvern veginn alveg búi...
Risa­stór tappakollur í fal­legri í­búð - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Risa­stór tappakollur í fal­legri í­búð - Vísir
Sindri fór fyrst í heimsókn til hennar fyrir 12 árum eða árið 2014 en núna er hann mættur aftur og það á nýjan stað. Þau hjónin ákváðu að minnka við s...
Ísland fellur um tvö sæti í nýsköpunarvísitölu
📅 01.10.2026 👁️ 0
Ísland fellur um tvö sæti í nýsköpunarvísitölu
Ísland féll um tvö sæti í nýútgefinni nýsköpunarvísitölu Alþjóðahugverkastofnunarinnar og hefur fallið um níu sæti á fimm árum.Ísland er í 26. sæti en...
Travelodge failed Maidenhead sex assault victim 'at every stage'
📅 01.10.2026 👁️ 0
Travelodge failed Maidenhead sex assault victim 'at every stage'
The review comes after a woman spoke out after being assaulted in a Maidenhead hotel.
Allt í hnút á Norður-Írlandi
📅 01.10.2026 👁️ 2
Allt í hnút á Norður-Írlandi
Sólveig Jónsdóttir, stjórnmálafræðingur og rithöfundur, er ekki bjartsýn á framtíð heimastjórnarinnar á Norður-Írlandi eftir að deilur blossuðu upp um...
Breiðhyltingum blöskrar ruslið í Iðufelli – „Það er skömm að þessu“
📅 01.10.2026 👁️ 2
Breiðhyltingum blöskrar ruslið í Iðufelli – „Það er skömm að þessu“
Íbúum í Breiðholtshverfinu í Reykjavík blöskrar ruslið og bílflökin sem hafa safnast upp við Iðufelli 14. Heilbrigðiseftirlitið hyggst hafa samband vi...
Launakröfur flugvirkja í engum takti við stöðu hagkerfisins
📅 01.10.2026 👁️ 2
Launakröfur flugvirkja í engum takti við stöðu hagkerfisins
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir liggja á að finna lausn í kjaramálum áður en frestur til að segja upp kjarasamning...
Fleiri hótelherbergi en færri gistinætur
📅 01.10.2026 👁️ 2
Fleiri hótelherbergi en færri gistinætur
Fleiri hótelherbergi en færri gistinætur Fram­boð hót­el­her­bergja jókst um 1,7 pró­sent í ág­úst en gistinótt­um á hót­el­um fækk­aði um 2,5 pró­sen...
Ivan Toney denies Soho nightclub assault
📅 01.10.2026 👁️ 2
Ivan Toney denies Soho nightclub assault
England striker Ivan Toney pleads not guilty to assaulting a man at a Soho nightclub last year.
Musk snýr aftur í formlegt ráðgjafarhlutverk hjá Trump
📅 01.10.2026 👁️ 2
Musk snýr aftur í formlegt ráðgjafarhlutverk hjá Trump
Musk snýr aftur í formlegt ráðgjafarhlutverk hjá Trump Varn­ar­mála­ráðu­neyt­ið seg­ir Elon Musk stýra Proj­ect Mer­idi­an ásamt Pal­mer Luckey og Ne...
Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal
📅 01.10.2026 👁️ 2
Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal
Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal Laugardalur Mynd: Víkingur Samnemendur unglings í Laugardal bundu hann og skildu eftir í kja...
„Það er að verða fólki ofviða að kaupa sér íbúð í Reykjavík“
📅 01.10.2026 👁️ 3
„Það er að verða fólki ofviða að kaupa sér íbúð í Reykjavík“
„Það er að verða fólki ofviða að kaupa sér íbúð í Reykjavík,“ segir Ari Edwald, borgarfulltrúi Miðflokksins, í samtali við Morgunblaðið í dag. Ari hef...
Pétur gagnrýnir milljónakaup í borgarstjórnarsalinn: „Hér fær kerfið meira og hverfin minna“
📅 01.10.2026 👁️ 3
Pétur gagnrýnir milljónakaup í borgarstjórnarsalinn: „Hér fær kerfið meira og hverfin minna“
Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, gagnrýnir meirihlutann í borginni fyrir að kaupa stóla og skjái í borgarstjórnarsalinn á sam...
Ný­sköpun frá Icewear fyrir ís­lenskt veður­far - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 3
Ný­sköpun frá Icewear fyrir ís­lenskt veður­far - Vísir
„Íslenska ullin hefur varið kindurnar okkar fyrir veðri í meira en þúsund ár. Ullin er tvískipt: mjúka þelið fangar loft og heldur hita, á meðan togið...
„Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 3
„Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ - Vísir
Helena Líndal, forstöðumaður eitrunarmiðstöðvar Landspítalans, ræddi málin í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Töluverð aukning verður alltaf á símtölum í ...
Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi
📅 01.10.2026 👁️ 2
Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi
Þverárfellsvegur lokaðist fyrir allri umferð rétt fyrir ofan Sauðárkrók, til móts við bæinn Skarð, þegar flutningabíll valt á veginum. Bíllinn og vagn...
Þverárfellsvegur lokaður lengi eftir að mjólkurbíll valt
📅 01.10.2026 👁️ 2
Þverárfellsvegur lokaður lengi eftir að mjólkurbíll valt
Þverárfellsvegur lokaðist fyrir allri umferð rétt fyrir ofan Sauðárkrók, til móts við bæinn Skarð, þegar mjólkurbíll valt á veginum. Bíllinn og vagn s...
Flutninga­bíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 3
Flutninga­bíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður - Vísir
Þar segir að flutningabíll hafi oltið og þverar bíllinn ásamt vagni veginn. Vegfarendum er bent á að fara þjóðveg 1 um Vatnsskarð.  Að sögn lögreglu e...
Sviss­neskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 3
Sviss­neskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum - Vísir
 Talið er að loftslagsbreytingar hafi þar mest áhrif. Breyting hefur orðið á ásýnd alpasvæðisins þar sem stórar hvítar snjóbreiður víkja fyrir grýttum...
Vill sérstaka umræðu á þingi um lyfjagjafir á hjúkrunarheimilum
📅 01.10.2026 👁️ 2
Vill sérstaka umræðu á þingi um lyfjagjafir á hjúkrunarheimilum
Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur óskað eftir sérstakri umræðu á Alþingi um umfang og þarfir fyrir lyfjagjöf á hjúkrunarhei...
Gera ó­háða rann­sókn á hóp­nauðgun við há­skólann - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 3
Gera ó­háða rann­sókn á hóp­nauðgun við há­skólann - Vísir
Í færslu á samfélagsmiðlum á miðvikudag sagði hún að hún hefði rætt við Kotlikoff og að hann hefði „samþykkt að fá utanaðkomandi lögmann til að framkv...
Þrjú lögðust gegn sniðgöngu Eurovision
📅 01.10.2026 👁️ 3
Þrjú lögðust gegn sniðgöngu Eurovision
Stjórn RÚV klofnaði í afstöðu sinni til þess hvort fjölmiðillinn ætti áfram að sniðganga Eurovision-söngvakeppnina eða ekki. Meirihluti stjórnar greid...
Dæmd í Dan­mörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 3
Dæmd í Dan­mörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila - Vísir
Í umfjöllun danska ríkisútvarpsins kemur fram að um hafi verið að ræða karl og konu á vesturhluta Sjálands. Konan var dæmd fyrir að hafa selt spilin o...
„Hann var ekkert voðalega samvinnuþýður í fyrstu“
📅 01.10.2026 👁️ 3
„Hann var ekkert voðalega samvinnuþýður í fyrstu“
Næturvaktin var róleg hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins en dagarnir geta boðið upp á fjölbreytt verkefni. Það sannaðist í Fossvogi í Reykjavík í fy...
Skýrar vís­bendingar að Íranir eigi hlut að máli - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 3
Skýrar vís­bendingar að Íranir eigi hlut að máli - Vísir
Þetta er haft eftir Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands á BBC, sem veitti þó ekki frekari upplýsingar. Íranir hafa vísað þessum ásökunum á bug og...
Lægðin grynnist í dag en von á annarri - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 3
Lægðin grynnist í dag en von á annarri - Vísir
Þetta er meðal þess sem kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Gular viðvaranir eru í gildi á Norðurlandi eystra, Austurlandi a...
50 miljónum varið í stólakaup og LED-skjá í borgarstjórnarsal
📅 01.10.2026 👁️ 3
50 miljónum varið í stólakaup og LED-skjá í borgarstjórnarsal
50 miljónum varið í stólakaup og LED-skjá í borgarstjórnarsal Odd­viti Sam­fylk­ing­ar­inn­ar gagn­rýn­ir for­gagns­röð­un meiri­hlut­ans sem ætl­ar a...
50 milljónum varið í stólakaup og LED-skjá í borgarstjórnarsal
📅 01.10.2026 👁️ 2
50 milljónum varið í stólakaup og LED-skjá í borgarstjórnarsal
50 milljónum varið í stólakaup og LED-skjá í borgarstjórnarsal Odd­viti Sam­fylk­ing­ar­inn­ar gagn­rýn­ir for­gagns­röð­un meiri­hlut­ans sem ætl­ar ...
Stormur á norðaustanverðu landinu og miðhálendinu
📅 01.10.2026 👁️ 3
Stormur á norðaustanverðu landinu og miðhálendinu
Stormur geisar á Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi og miðhálendinu. Vindur er á bilinu 15-25 metrar á sekúndu og getur farið yfir 35 metra ...
Tvær sómalskar stúlkur dæmdar eftir hópárásir á 13 ára stúlku – Börn ítrekað niðurlægð og upptökum dreift
📅 01.10.2026 👁️ 4
Tvær sómalskar stúlkur dæmdar eftir hópárásir á 13 ára stúlku – Börn ítrekað niðurlægð og upptökum dreift
Tvær stúlkur af sómölskum uppruna hafa verið dæmdar eftir að 13 ára stúlka var barin tvisvar sama dag í Osló. Árásirnar voru teknar upp og upptökunum ...
Á spítala eftir mis­heppnaða af­töku - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 3
Á spítala eftir mis­heppnaða af­töku - Vísir
Christa Pike var átján ára þegar hún, ásamt kærasta sínum, misþyrmdi og drap hina 19 ára Colleen Slemmer árið 1995. Hún hefur setið í fangelsi síðan o...
Dame Esther Rantzen: Tributes paid to 'inspirational' presenter and charity founder
📅 01.10.2026 👁️ 3
Dame Esther Rantzen: Tributes paid to 'inspirational' presenter and charity founder
Dame Esther Rantzen was "an inspirational individual", the director of her Childline helpline says.
Dame Esther Rantzen: Tributes paid to 'inspirational' presenter and Childline founder
📅 01.10.2026 👁️ 3
Dame Esther Rantzen: Tributes paid to 'inspirational' presenter and Childline founder
Dame Esther Rantzen was "an inspirational individual", the director of her Childline helpline says.
TUI: Strong winter ahead for the Canary Islands
📅 01.10.2026 👁️ 4
TUI: Strong winter ahead for the Canary Islands
The Canary Islands will account for almost half of TUI's airline capacity to its main winter-sun destinations this coming season. The travel giant has...
Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 4
Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi - Vísir
Dagur aldraðra er haldinn í dag. Er um að ræða framtak á vegum Sameinuðu þjóðanna. Deginum er ætlað að bæta stöðu eldra fólks. Ólíklegt er þó að ræður...
Þorsteinn Pálsson skrifar: Vísitöludansinn hefur aldrei leyst verðbólguvandann
📅 01.10.2026 👁️ 3
Þorsteinn Pálsson skrifar: Vísitöludansinn hefur aldrei leyst verðbólguvandann
Mynd Atvinnulífið og verkalýðsfélögin hafa enn á ný myndað ábyrg
Hryllingur á dauðadeild þegar yfirvöldum mistókst í tvígang að taka Christu Pike af lífi
📅 01.10.2026 👁️ 3
Hryllingur á dauðadeild þegar yfirvöldum mistókst í tvígang að taka Christu Pike af lífi
Hin fimmtudaga Christa Pike, sem dæmd var til dauða fyrir hrottalegt morð á unglingsstúlku árið 1995, er á sjúkrahúsi eftir að aftaka hennar í Tenness...
Þúsundir heimavarnarliða í fjölmennustu æfingu frá lokum kalda stríðsins
📅 01.10.2026 👁️ 4
Þúsundir heimavarnarliða í fjölmennustu æfingu frá lokum kalda stríðsins
Þúsundir sjálfboðaliða í heimavarnarliði Danmerkur taka þessa dagana þátt í einhverri umfangsmestu æfingu sem haldin hefur verið frá lokum kalda stríð...
Réttindalaus ökumaður ók glæfralega um vesturborgina
📅 01.10.2026 👁️ 4
Réttindalaus ökumaður ók glæfralega um vesturborgina
Lögreglumenn eltu uppi og stöðvuðu bílstjóra sem ók glæfralega um vesturhluta Reykjavíkur í gærkvöld og í nótt.Ökumaðurinn reyndist réttindalaus og má...
69-year-old surfer seriously injured in Fuerteventura is airlifted to Gran Canaria
📅 01.10.2026 👁️ 3
69-year-old surfer seriously injured in Fuerteventura is airlifted to Gran Canaria
A 69-year-old surfer has been seriously injured while surfing at Playa del Águila, near El Cotillo in Fuerteventura. The accident happened at around 1...
Bíl ekið á ljósa­staur - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 3
Bíl ekið á ljósa­staur - Vísir
Í dagbók er annars fjallað um nokkurn fjölda ökumanna sem lögreglan hafði afskipti af víða um höfuðborgarsvæðið vegna þess að þeir óku undir áhrifum á...
What we know after Christa Pike survived two lethal injections
📅 01.10.2026 👁️ 4
What we know after Christa Pike survived two lethal injections
Her legal team filed an emergency motion to halt the convicted murderer's execution as it was happening.
Alexander Skarsgård: „Ég hef saknað Íslands“
📅 01.10.2026 👁️ 4
Alexander Skarsgård: „Ég hef saknað Íslands“
Alexander Skarsgård segist verða að leggja reglulega frá sér símann og fara út í náttúruna. Það sé nauðsynlegt mótvægi við umstangið sem fylgir kvikmy...