Fjölbreytt dagskrá er í boði á bæjarhátíðinni Tðugjöldum í Rangárþingi ytra um helgina. Eitt af atriðum dagsins í dag er hæfileikakeppni gæludýra.
Töðugjöld Rangárþings ytra eru árlegur viðburður á þessum tíma þar sem boðið er upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa, íbúa og gesti þeirra. Í morgun var meðal annars ókeypis morgunverður fyrir alla í íþróttahúsinu á Hellu, sem var vel sóttur í umsjón kvennakórsins Ljósbrár. Dagskráin heldur svo áfram í allan dag, í kvöld og á morgun.
Helga Guðrún Lárusdóttir er markaðs- og kynningarfulltrúi Rangárþings ytra og veit allt um Töðugjöldin.
„Það er alveg stappfull dagskrá. Í hádeginu er barnadagskráin að hefjast og svo er tækjasýning hér á árbakkanum frá Flugbjörgunarsveitinni þar sem þau sýna græjurnar sínar. Svo er listasmiðja, Hugverk í heimabyggð er með listasýningu í íþróttahúsinu og svo er töðugjaldamarkaðurinn, sem er líka mjög vel sóttur, það er líka hérna inni í íþróttahúsi,” segir Helga Guðrún.
Í kvöld verður kvöldvaka á Rangárbökkum þar sem Herra Hnetusmjör, KK og Bjartmar Guðlaugsson munu m.a. koma fram og Guðrún Árný stjórnar brekkusöng. Hápunkturinn verður svo flugeldasýning Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu og ball á eftir.
En eitt atriði á dagskrá dagsins vekur nokkra athygli en það er sérstök hæfileikakeppni gæludýra.
„Þetta hefur alltaf verið hæfileikakeppni dýra en af því að við færðum alla dagskrána inn í hús þá eru það núna gæludýr sem fá að sýna sig og sjá aðra og við hvetjum bara alla til að skrá sín gæludýr og koma og sýna þeirra listir, þetta gæti bara orðið mjög skemmtilegt,” segir Helga Guðrún.