Stærsta tónlistarstreymisveita heims, Spotify, ætlar að búa til sérstakt merki til að aðgreina gervigreindartónlistarmenn frá mennsku tónlistarfólki. Markmiðið er að aðgreina djúpfalsaða listamenn frá raunverulegum flytjendum sem gætu tapað tekjum á streymi sem flyst frá þeim til „gervi“-keppinauta.
Spotify tilkynnti breytingarnar í vikunni en þær taka gildi um miðjan september. Gervigreindarlistamenn verða merktir með sérstöku „AI persona“-merki og verða sjálfkrafa útilokaðir frá sérsniðnum ráðleggingum sem algóritmi leggur til.
„Hlustendur hafa sagt okkur skýrt að þeim líki ekki að sjá heimasíður listamanna sem líti út fyrir að vera mennskir en komast svo að því að þeir séu búnir til með gervigreind,“ segir í tilkynningunni.
Merkið á að gefa til kynna að listamaðurinn geti verið búinn til með gervigreind og endurspegi því ekki raunverulega manneskju.
„Sönn tengingin milli listamanna og aðdáenda getur aðeins verið byggð á trausti og áreiðanleika. Í tónlist þýðir það að hlustendur þurfa að geta treyst því að listamaðurinn á bak við tónlistina sé sá sem hann segist vera. Það er mikilvægara en nokkru sinni á tímum skapandi gervigreindar.“
Meðfram þessum breytingum hættir algóritmi streymisveitunnar að mæla með eða stinga upp á gervigreindartónlist nema manneskja sé að fylgja gervigreindarlistamanni.
Þetta þýðir sem dæmi að hljómsveitin The Velvet Sundown, sem fékk rúmlega milljón streyma á nokkrum vikum á Spotify í fyrra, verður merkt sérstaklega. Hljómsveitin vakti mikla athygli þegar hún gaf út tvær plötur í júní í fyrra sem voru í svipuðum anda og lög Crosby, Stills, Nash & Young.
Fyrst um sinn neitaði hljómsveitin því að vera búin til með gervigreind á samfélagsmiðlum. Stuttu síðar sendi hún frá sér yfirlýsingu þar sem hún staðfesti að hún hafi verið gerð með gervigreind. Hljómsveitin væri ekki alveg mennsk en ekki alveg vélmenni heldur lifi hún einhvers staðar þar á milli.
Hljómsveitin er með rúmlega 100 þúsund hlustendur mánaðarlega en á heimasíðu þeirra á streymisveitunni er ekki merkt sérstaklega að hún sé búin til með gervigreind. Þegar þessi frétt er skrifuð er vinsælasta lag „hljómsveitarinnar“, Dust on the Wind, með nærri 5 milljón streyma á Spotify.
Streymisveitan greindi frá því í fyrra að hún hefði fjarlægt 75 milljón lög á tólf mánaða tímabili sem gerð voru með gervigreind en þess má geta að um 100 milljón lög eru í safnskrá Spotify.
Streymisveitan leyfir tónlistarmönnunum sjálfum að afhjúpa hvort þeir séu gerðir með hjálp gervigreindar, eða ekki, og merkja þá á viðeigandi hátt ef svo á við. En streymisveitan treystir ekki eingöngu á heiðarleika tónlistarmannanna sjálfra heldur ætlar hún að nota bæði manneskjur og gervigreind til að ákvarða hvort listamenn séu til í alvöru eða ekki.