„Að nota ágreining sem rök gegn aðferð til að leysa úr ágreiningi er mjög spes, vægast sagt,“ segir Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar, í pistli sem hann birti á Facebook í dag.Þar gerir hann orð Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, að umtalsefni en hún sagði í vikunni að íslenska þjóðin væri klofin í herðar niður í afstöðu sinni gagnvart aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Sigmar tætir í sig málflutning Guðrúnar: „Mjög spes, vægast sagt“