Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir að kennarar verði að treysta því að innleiðingaráætlun ríkisstjórnarinnar varðandi breytingu á einkunnakerfi grunnskóla muni standa.
Innleiðing breytinga á einkunnagjöf úr bókstöfum í tölustafi hefur verið umdeild. Mjöll Matthíasdóttir formaður Félags grunnskólakennara sagði í hádegisfréttum að breytingin kæmi eins og þruma úr heiðskíru lofti.
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, segir hins vegar breytingarnar ekki hafa átt að koma grunnskólakennurum á óvart. Hún sagði í kvöldfréttum að sjaldan hafi verið jafn mikið samtal við nokkurn hóp og kennarahópinn. Jafnframt hafi þeir flestir tekið breytingunum fagnandi.
Magnús Þór kannast ekki við að þar með sé ósamhljómur milli kennara og kennaraforystunnar. Þvert á móti segir hann að kennaraforystan hafi aldrei staðið þéttar. Það sé þó ekki það sem málið snúist um.
„Núna liggur þetta fyrir. Við fengum fund með ráðuneytinu í síðustu viku þar sem að ráðuneytið lagði upp þá vinnu sem þau leggja til að verði. Og til þess að við náum farsæld í því verkefni þá verðum við að treysta á að sú innleiðingaráætlun ráðuneytisins muni standa og við fáum stuðning ráðuneytisins og ekki síður sveitarfélaganna,“ sagði Magnús Þór í kvöldfréttum sjónvarps.
„Íslenskir kennarar eru ofurmenni“
Hann segir það ekki samráð þegar búið er að taka ákvörðun og að keyra eigi svo á henni. Ennþá sé hægt að leiðrétta þann kúrs.
„Við fengum ákveðin loforð, ákveðin svona viðbrögð frá ráðuneytinu um að framundan væri þetta samráð sem þarf að verða.
„Það eru kennararnir í grunnskólunum og síðan í framhaldsskólunum sem bera hitann og þungann af því að við leysum þetta verkefni. Við erum þarna í þessum stöðum okkar til þess að hjálpa börnunum sem koma til okkar,“ segir Magnús Þór.
Hann segir kennara hefðu viljað fá lengri tíma auk meira og öflugra samráðs.
„En íslenskir kennarar eru ofurmenni og ég hef fulla trú á að mitt fólk í öllum skólum landsins sé tilbúið. En þá verðum við að treysta á það að ráðuneytið standi við innleiðingaráætlun og sveitarfélögin séu tilbúin að koma til móts við okkur og hjálpa okkur með það sem þarf svo við getum unnið þessa vinnu börnunum til heilla.“