Íslensk fjölskylda borgar 150 þúsund meira af sínu húsnæðisláni á mánuði en fjölskylda á evrusvæðinu. Þessir peningar fara í að skapa hagnað bankanna og færa innistæðueigendum hærri vexti en eru annars staðar í boði. Sárlega vantar samkeppni á íslenskan banka- og lánamarkað en hún kemur aldrei að meðan hér er íslensk króna. Halldór Jörgen Olesen, ritstjóri Verðbólguvaktarinnar, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Halldór Jörgen Olesen: Íslensk fjölskylda borgar 150 þúsund meira á mánuði í húsnæðislán vegna krónunnar