Rósa Guðbjartsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, segir að breytingar sem gerðar voru á fánalögunum á Alþingi fyrr á árinu hafi reynst vel. En betur má ef duga skal og segir Rósa fullt tilefni til að ganga lengra.„Íslenski fáninn, helsta sameiningartákn okkar, hefur blakt mjög víða í sumar. Þökk sé breytingum á fánalögum sem Alþingi gerði fyrr á árinu. Nú er heimilt að flagga fánanum allan sólarhringinn á tímabilinu 1. maí til dagsins í dag, 15. ágúst.”
Rósa vill sjá íslenska fánann oftar: „Fólk á að fá að flagga þegar því hentar“