Þórdís hefur nú stigið fyrsta formlega skrefið sem nýr sendiherra, segir í tilkynningu sendiráðsins, en hún hefur afhent afrit af trúnaðarbréfi sínu til prótokollskrifstofu breska utanríkisráðuneytisins. Trúnaðarbréfið er skjal frá þjóðhöfðingja sendiríkisins til þjóðhöfðingja viðtökuríkisins og staðfestir formlega að sendiherrann komi fram fyrir hönd síns lands.
Þórdís Kolbrún mun síðar afhenda Karli III. Bretakonungi bréfið í formlegri athöfn. Sendiherrann telst þá kominn með fullt formlegt umboð.
Ljóst er að spennandi tímar eru fram undan hjá Þórdísi Kolbrúnu, en þó vonandi ekki of spennandi. Spennuþættir streymisveitunnar Netflix: Diplómatinn (e. The Diplomat) hafa síðustu ár notið mikilla vinsælda en aðalsöguhetja þeirra tekur einmitt við stöðu sendiherra Bandaríkjanna í Lundúnum þegar mikil alþjóðkrísa hefst.
Þættirnir fjalla um hina slyngu Kate Wyler sem reynist betri en enginn í því sem á eftir fylgir og er, hvað eftir annað, sú eina sem hefur lausnir á reiðum höndum.
Þegar eru komnar út þrjár seríur en óstaðfestar fregnir herma að sú fjórða mæti á skjáinn í október.