Spænsk F-18 orrustuþota skaut niður ómannaðan dróna í loftrými Rúmeníu, nærri borginni Galati við landamæri Moldóvu í nótt. Spænski flugherinn sinnir loftrýmisgæslu í Rúmeníu um þessar mundir á vegum Atlantshafsbandalagsins.
Uppruni drónans er óþekktur en rúmenska varnarmálaráðuneytið segir að dróninn hafi flogið ólöglega inn í loftrými Rúmeníu frá Moldóvu.
Þetta er fjórði dróninn sem er skotinn niður í landinu á þessu ári. Rúmenskar orrustuþotur skutu niður þrjá rússneska dróna sem komu inn í loftrými Rúmeníu í júlí.
Fréttastofa Reuters segir að drónar hafi ítrekað flogið inn í loftrými landsins síðan innrás Rússa hófst í Úkraínu í febrúar 2022.