Á Kastrup eykst umferðin en það gerir mengunin líka

Á Kastrup eykst umferðin en það gerir mengunin líka

Á Kastrup eykst umferðin en það gerir mengunin líka

Á Kastrup eykst umferðin en það gerir mengunin líka

Um­ferð­in um Kast­rup flug­völl við Kaup­manna­höfn eykst ár frá ári. Bú­ist er við að tæp­lega 36 millj­ón­ir far­þega fari um völl­inn á þessu ári og brott­far­ir og kom­ur eru að jafn­aði um 700 á degi hverj­um. Ný 60 þús­und fer­metra við­bót við flug­stöðv­ar­bygg­ing­una verð­ur tek­in í notk­un á næsta ári. Íbú­ar í ná­grenni flug­vall­ar­ins hafa áhyggj­ur af meng­un sem fylg­ir flug­um­ferð­inni.

Flugvöllurinn á Kastrup var tekinn í notkun 20. apríl 1925 og fékk þá nafnið Kastrup Lufthavn. Nafninu var síðar breytt í Københavns Lufthavn Kastrup og enn síðar stytt í Københavns Lufthavn, nafnið þannig einungis tengt dönsku höfuðborginni. Flugbrautin var upphaflega ein og grasi gróin, fljótlega var annarri braut bætt við.  Búpeningur bænda á Amager hafði vanist því að ganga á beit á svæðinu og því þurfti iðulega að smala völlinn þegar von var á flugvélum til lendingar eða brottfarar, sem voru að jafnaði 6 á dag fyrsta árið.

Áður en völlurinn á Kastrup var tekinn í notkun hafði Kløvermarken (Smáraengið), stærðar tún á norðurhluta Amager, verið eini löglegi flugvöllurinn í Danmörku og þar hafði flugskóli danska hersins haft aðsetur á árunum 1912 – 1923.

Det Danske Luftfartsselskab (sem síðar varð hluti af SAS) var stofnað árið 1918 og hóf flugferðir milli Kaupmannahafnar, Malmö og Hamborgar. Ljóst var að Kløvermarkensvæðið var ekki framtíðarsvæði fyrir flugvöll, ýmsar hugmyndir um heppilegt flugvallarstæði voru kannaðar en að lokum varð Kastrup, 8 kílómetrum frá miðborg Kaupmannahafnar fyrir valinu.

Ætluðu að sprengja flugvélar Þjóðverja á Kastrup

Eftir hernám Þjóðverja á Danmörku árið 1940 steyptu þeir flugbrautirnar á Kastrup, sem nú voru orðnar fjórar (var seinna fækkað um eina). Þegar komið var fram undir lok síðari heimsstyrjaldarinnar komu Þjóðverjar fyrir tugum flugvéla á Kastrup, vélum sem þeim tókst að koma þangað eftir að tap blasti við á austurvígstöðvunum.

Í bókinni „Bomber over Danmark“ sem kom út 1988 ( önnur útgáfa 2012) er sagt frá því að 2. apríl 1945 stefndu 708 stórar flugvélar Bandaríkjahers, hlaðnar sprengjum, til Danmerkur. Ætlunin var að sprengja 6 flugvelli í Danmörku og eyðileggja þýsku flugvélarnar á Kastrup en meirihluta vélanna 708 var stefnt þangað. Þegar vélarnar nálguðust Danmörku skall á svartaþoka en áhafnir bandarísku vélanna höfðu fengið skýr fyrirmæli um að ekki mætti treysta á radartæki þegar að því kæmi að láta sprengjurnar falla. Vélunum var því snúið við og sama sagan endurtók sig daginn eftir. Yfirmenn Bandaríkjahers mátu það svo að hætta væri á að sprengjurnar lentu  á íbúðahverfum skammt frá flugvellinum ef eingöngu væri treyst á radartæki. Slíkt hefði valdið miklu mann- og eignatjóni og á það vildi herinn ekki hætta. Ekki voru gerðar fleiri tilraunir til að eyðileggja flugflota Þjóðverja á Kastrup en nú styttist í endalok stríðsins.

Ferðamenn Sífellt fleiri ferðamenn fara um flugvöllinn.

Sneru bökum saman og stofnuðu SAS

Það hefði vissulega verið einkennilegt ef bandamenn hefðu eyðilagt flugvöllinn á Kastrup en segja má að Danir og reyndar bandamenn geti þakkað þokunni að svo fór ekki. Eftir að stríðinu lauk var Kastrup einn fárra stórra nothæfra flugvalla í Norður-Evrópu, Svíar áttu stóran flugflota og Norðmenn stóran hóp hæfra flugmanna. Þetta hefur iðulega verið nefnt sem skýring á stofnun SAS 1. ágúst 1946. Ákveðið var að Kastrup yrði aðalflugvöllur félagsins. Eftir að SAS hóf áætlunarflug til Bandaríkjanna árið 1954 jókst umferðin um Kastrup til muna. Saga SAS verður ekki rakin hér en á ýmsu hefur gengið í 80 ára sögu félagsins, sem virðist þessa dagana standa traustum fótum ef svo má að orði komast.

 

Aukin umferð, þotuöldin, hugmyndir um flutning og stækkun.

Segja má að saga Kastrup flugvallar sé ein samfelld stækkunarsaga. Flugstöðvarbyggingin, sem hinn þekkti arkitekt Vilhelm Lauritzen teiknaði og var tekin í notkun 1939  var löngu orðin of lítil þegar ný bygging, Terminal 2 var tekin í notkun árið 1960. Þá var þotuöldin hafin en fyrsta þotan lenti á Kastrup árið 1957. Árið 1998 kom enn ein flugstöðvarbyggingin, Terminal 3, en gamla Vilhelm Lauritzen flugstöðin (kölluð Terminal 1) var færð til og er í dag notuð við hátíðleg tækifæri, til dæmis heimsóknir erlendra þjóðhöfðingja. Landrými við Kastrup er takmarkað og íbúðabyggð í næsta nágrenni, Dragør sunnan við og Tårnby norðan megin. Á áttunda áratug síðustu aldar voru uppi hugmyndir um að flytja flugvöllinn út á Salthólmann, eyju sem liggur austan við Eyrarsundsbrúna. Danska þingið, Folketinget, samþykkti lög þar að lútandi. Ekkert gerðist þó og á endanum voru Salthólmalögin felld úr gildi og ákveðið að flugvöllurinn yrði á Kastrup um langa framtíð, eins og það var orðað.  Á Kastrup eru 3 flugbrautir, tvær samhliða og ein styttri þverbraut, hún er minna notuð. Vegna þess hve þröngt er um flugvöllinn var ákveðið árið 2016 að þverbrautinni yrði lokað. Frá því var reyndar horfið ári síðar en þess í stað var árið 2018 tilkynnt um umfangsmestu framkvæmdir nokkru sinni á flugvallarsvæðinu.

 

Horft til áratuga

Þegar Thomas Woldbye framkvæmdastjóri flugvallarins kynnti fréttamönnum hinar miklu framkvæmdir (sem fjölmiðlar kölluðu stóra planið) sagði hann að verið væri að horfa til áratuga. „Við miðum við að fjöldi þeirra sem um völlinn fara geti á næstu áratugum náð 50 milljónum, teljum það reyndar varlega áætlað.“  „Stóra planið“ er viðbygging við Terminal 3, hún verður um það bil 60 þúsund fermetrar, (álíka og 8 fótboltavellir), þar verða 13 nýir veitingastaðir og 27 verslanir. 5 ný farangursbönd bætast við þau sem fyrir eru og farangursfæriböndin verða þá samtals rúmlega 12 kílómetra löng. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum við „stóra planið“ ljúki á næsta ári.   

 

SAS og Norwegian fyrirferðarmest

Eins og minnst var á framar í þessum pistli hefur gengið vel hjá SAS að undanförnu og Norwegian virðist, eftir mikla erfiðleika í kjölfar kórónaveirunnar vera komið upp úr öldudalnum eins og norska fréttastofan NTB komst að orði í nýlegri umfjöllun. Þessi tvö félög, SAS og Norwegian, eru ásamt Ryanair stærstu viðskiptavinirnir á Kastrup. Staðir sem flogið er til frá Kastrup eru nálægt 200 hundruð og fjölgar stöðugt. Á  síðasta ári flugu vélar 63 félaga til og frá Kastrup og gert er ráð fyrir að um völlinn fari um það bil 36 milljónir farþega á þessu ári.   

 

Aukin mengun veldur áhyggjum

Alkunna er að frá flugvélum stafar loft- og hávaðamengun, mest við lendingu og flugtak. Á Kastrup lenda að jafnaði 350 flugvélar á hverjum degi, og jafnmargar hefja sig til flugs. Þessi tala fer hækkandi ef áætlanir ganga eftir og íbúar í nágrenni flugvallarins hafa miklar áhyggjur af menguninni.  Í skýrslu sem birt var árið  2024 kom fram að mengun frá flugvellinum hefur aukist mikið á síðustu árum, í takt við aukin umsvif. Samkvæmt því sem fram kom í skýrslunni, sem unnin er af Umhverfisstofnun Árósaháskóla, er hvergi í Kaupmannahöfn meiri mengun en í nágrenni flugvallarins. Mengunin er meiri en við H.C. Andersen Boulevard, við Ráðhústorgið, sem er mikil umferðargata. Þessi mikla umferðargata var lengi vel „methafinn“ í loftmengun en nú hefur flugvöllurinn á Kastrup tekið það sæti. Mengun í nágrenni Kastrup, þar sem eru stór íbúðahverfi, er langt ofan þeirra marka sem teljast heilsusamleg. Þetta veldur íbúum í nágrenni vallarins miklum áhyggjum. Á síðasta ári sendu þeir rúmlega 38 þúsund kvartanir til flugvallaryfirvalda og samgönguráðherra þar sem krafist var úrbóta. Bæði varðandi loft- og hljóðmengun.

BreystFlugvöllurinn hefur tekið umtalsverðum breytingum í gegnum árin.

Viðurkenna vandann en segja margt standa til bóta

Yfirstjórn Kastrup flugvallar fagnaði áðurnefndri skýrslu frá 2024, sagði hana mikilvæga, en lagði jafnframt áherslu á að miklar breytingar væru í gangi á Kastrup. Nýjar þotur væru mun lágværari en þær eldri, sem fækkar hægt og hægt. Sömuleiðis væru nýrri þotur mun sparneytari, sem þýðir minni útblástur við flugtak. Í viðtali við danska sjónvarpið, DR, sýndi einn úr flugvallarstjórninni kort þar sem sást hvernig aðflugi að Kastrup hefur verið breytt þannig að meira er flogið yfir sjó, annarsvegar Eyrarsundi og hinsvegar Køgeflóa, í stað íbúðabyggðar. Í viðtalinu kom líka fram að æ stærri hluti þeirra farartækja, sem notuð eru á flugvellinum, farangurs- og farþegavagna o.fl er rafknúinn. Sömuleiðis fjölgar þeim stöðugt sem nota Metro lestirnar til að ferðast til og frá Kastrup. Yfirstjórn flugvallarins segir allt kapp lagt á að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar á þessum stærsta vinnustað í Danmörku. Starfsmenn á Kastrup eru í kringum 18 þúsund en önnur störf sem tengjast flugvallarstarfseminni eru talin vera um 40 þúsund.

Það má til gamans geta þess að þegar þotuöldin hófst var þetta nýja farartæki fyrst í stað kallaðar þrýstiloftsflugvél. Frásagnir og fréttir af þessu nýja farartæki voru mjög áberandi á sjötta áratug síðustu aldar. Högna Torfasyni (1924 – 1990), sem þá var fréttamaður á Ríkisútvarpinu, blöskraði þetta þrýstiloftsflugvélatal og lagði til að þess í stað yrði notað orðið ÞOTA. Sem sló samstundis í gegn.

#eykst #gerir #kastrup #umferðin #það


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/27053/a-kastrup-eykst-umferdin-en-thad-gerir-mengunin-lika/

📰 Aðrar fréttir

Kólumbía: Hafa áhyggjur af ásælni glæpahópa í börn eftir jarðskjálfta
📅 16.08.2026 👁️ 0
Kólumbía: Hafa áhyggjur af ásælni glæpahópa í börn eftir jarðskjálfta
Hreinsunarstarf er hafið í Kólumbíu eftir öflugan jarðskjálfta sem reið yfir fyrir viku.Borgin Pereira, í vesturhluta landsins, varð einna verst úti í...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hinar sundruðu fjölskyldur
📅 16.08.2026 👁️ 0
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hinar sundruðu fjölskyldur
Mynd Það hefur örugglega verið nokkur léttir fyrir mar
Þrír drepnir í drónaárásum í Rostov
📅 16.08.2026 👁️ 0
Þrír drepnir í drónaárásum í Rostov
Að minnsta kosti þrír voru drepnir í drónaárásum Úkraínuhers á Rostov í Rússlandi í nótt. Miklar drónaárásir voru einnig gerðar á Moskvu.Borgarstjórin...
Handtekinn fyrir að lemja gesti skemmtistaðar með stól
📅 16.08.2026 👁️ 0
Handtekinn fyrir að lemja gesti skemmtistaðar með stól
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann á skemmtistað í miðbænum sem lamið hafði gesti með stól. Nokkur erill var hjá lögreglunni en annar var han...
Bjart víðast hvar á landinu í dag - Vísir
📅 16.08.2026 👁️ 0
Bjart víðast hvar á landinu í dag - Vísir
Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofunni að á morgun nálgist lægð úr suðvestri. Þá gengur í austan 5-10 m/s, en 10-15 við suðurströndin...
People who fled Stourbridge fires start to return home
📅 16.08.2026 👁️ 0
People who fled Stourbridge fires start to return home
Many families are only just discovering the extent of damage to their homes for the first time.
Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ - Vísir
📅 16.08.2026 👁️ 0
Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ - Vísir
Að hitta fyrir ungan pilt frá Filippseyjum, sem er brosmildur, bjartsýnn, jákvæður, finnst Ísland æðislegt, segir sjálfstraust skipta lykilmáli, talar...
Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði - Vísir
📅 16.08.2026 👁️ 1
Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði - Vísir
Að sögn lögreglu valt rútan eftir að hafa farið út af M3-hraðbrautinni, sem tengir höfuðborgina Búdapest við borgina Nyíregyháza í norðausturhluta lan...
Spain’s most-viewed luxury home is in the Canary Islands – and it’s on sale for €3.2 million
📅 16.08.2026 👁️ 0
Spain’s most-viewed luxury home is in the Canary Islands – and it’s on sale for €3.2 million
A spectacular villa in the Canary Islands, complete with a private swimming pool, jacuzzi, gym and panoramic sea views, has become Spain’s most-viewed...
Mundaði stólinn og lamdi gesti - Vísir
📅 16.08.2026 👁️ 0
Mundaði stólinn og lamdi gesti - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.  Skammt undan á Seltjarnarnesi voru húsráðendur kærðir vegna mikils háv...
Bjart með köflum víðast hvar en væta á suðaustanverðu landinu
📅 16.08.2026 👁️ 1
Bjart með köflum víðast hvar en væta á suðaustanverðu landinu
Útlit er fyrir hæga breytilega vindátt í dag eða hafgolu á landinu. Bjart verður með köflum en skýjað og lítilsháttar væta um suðaustanvert landið. Hi...
Police seize 1,500 fake designer handbags in crackdown on illegal street selling in south Tenerife
📅 16.08.2026 👁️ 1
Police seize 1,500 fake designer handbags in crackdown on illegal street selling in south Tenerife
The Local Police have seized almost 1,500 counterfeit handbags as part of an ongoing crackdown on illegal street selling and the sale of fake goods in...
„Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ - Vísir
📅 16.08.2026 👁️ 1
„Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ - Vísir
Félagið býður upp á fjölbreytt félagsstarf, þar sem flestir geta fundið vettvang við sitt hæfi og er markmið þess að fyrirbyggja félagslega einangrun ...
Ný gögn: Ófundinn AR-15 var meðal þess sem tengdi föður ríkislögreglustjóra við hryðjuverkamálið
📅 16.08.2026 👁️ 1
Ný gögn: Ófundinn AR-15 var meðal þess sem tengdi föður ríkislögreglustjóra við hryðjuverkamálið
Bréf Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra til ríkissaksóknara sýnir að ófundinn AR-15 riffill var meðal þeirra atriða sem leiddu rannsók...
New premium cinema set to open in Gran Canaria this October
📅 16.08.2026 👁️ 1
New premium cinema set to open in Gran Canaria this October
Cinema is returning to El Muelle Shopping Centre in Las Palmas this autumn, with Odeon Multicines planning to open a new state-of-the-art complex in O...
Spænsk orrustuþota skaut niður dróna í Rúmeníu
📅 16.08.2026 👁️ 1
Spænsk orrustuþota skaut niður dróna í Rúmeníu
Spænsk F-18 orrustuþota skaut niður ómannaðan dróna í loftrými Rúmeníu, nærri borginni Galati við landamæri Moldóvu í nótt. Spænski flugherinn sinnir ...
Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu - Vísir
📅 16.08.2026 👁️ 1
Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Þegar hringnum var lokað á Íslandi
📅 16.08.2026 👁️ 1
Þegar hringnum var lokað á Íslandi
Margir Íslendingar bera örugglega nostalgískar tilfinningar í brjósti í garð hringvegarins um Ísland. Slíkar minningar eru oft tengdar ferðalögum úr æ...
Aðdáendur vottuðu Bonnie Tyler virðingu sína
📅 16.08.2026 👁️ 1
Aðdáendur vottuðu Bonnie Tyler virðingu sína
Þúsundir aðdáenda velsku söngkonunnar Bonnie Tyler komu saman í Mumbles í suður Wales í gær til að votta söngkonunni virðingu sína þegar kista hennar ...
Konur geta erft krúnuna eftir lagabreytingar
📅 16.08.2026 👁️ 1
Konur geta erft krúnuna eftir lagabreytingar
Konur geta nú erft krúnuna í furstadæminu Liechtenstein eftir lagabreytingu sem tilkynnt var um á þjóðhátíðardegi landsins í gær. Erfðaprinsinn Alois ...
77 fórust í ferjuslysi
📅 16.08.2026 👁️ 1
77 fórust í ferjuslysi
Yfirvöld í Simbabve segja að fjöldi látinna í ferjuslysi á Kariba-vatni fyrir vikunni sé kominn upp í 72. 77 var bjargað.Ferjunni hvolfdi á þriðjudag ...
Ariana Grande leaves problems at home as her tour hits the UK
📅 16.08.2026 👁️ 1
Ariana Grande leaves problems at home as her tour hits the UK
The star plays the first of 10 dates in London, after which she will "step back" from public life.
Handtóku um 300 sem ætluðu yfir landamærin til Ceuta
📅 16.08.2026 👁️ 1
Handtóku um 300 sem ætluðu yfir landamærin til Ceuta
Yfirvöld í Marokkó handtóku 294 í gær sem ætluðu að fara frá Marokkó yfir til spænsku hólmlendunnar Ceuta. Marokkóski fjölmiðillinn Le360 greinir frá....
Chart-topping game No 10: Full Confidence puts you in prime minister's shoes
📅 15.08.2026 👁️ 0
Chart-topping game No 10: Full Confidence puts you in prime minister's shoes
Mobile game No 10: Full Confidence recently ranked above Minecraft on the UK App Store paid games chart
From making friends to managing money: Students' advice for this year's freshers
📅 15.08.2026 👁️ 1
From making friends to managing money: Students' advice for this year's freshers
BC News asked current students about the worries they had before arriving at university how they overcame them.
Men are turning to penis fillers, but are they safe?
📅 15.08.2026 👁️ 1
Men are turning to penis fillers, but are they safe?
Men who have had the procedure can expect 10-20% more girth for the next six to nine months - but it can go wrong.
Sumarflöggun allan sólarhringinn lýkur á miðnætti
📅 15.08.2026 👁️ 1
Sumarflöggun allan sólarhringinn lýkur á miðnætti
Samkvæmt nýjum fánalögum er kvöldið í kvöld síðasta kvöldið sem flagga má íslenska fánanum allan sólarhringinn. Frá og með 16. ágúst gildir því aftur ...
Fimm særðust í skot­á­rás í banda­rískum há­skóla - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Fimm særðust í skot­á­rás í banda­rískum há­skóla - Vísir
Skotárásin átti sér stað við nemendahúsnæði háskólans. Staðfest hefur verið að einn hinna særðu sé yngri en átján ára og að einn hinna særðu sé nemand...
The influencers getting bitten chasing the perfect shark shot
📅 15.08.2026 👁️ 1
The influencers getting bitten chasing the perfect shark shot
Tayane Dalazen was on a shark-diving trip in Brazil when she was attacked.
Leavitt and Ocasio-Cortez spark conversation on challenges of family and career
📅 15.08.2026 👁️ 0
Leavitt and Ocasio-Cortez spark conversation on challenges of family and career
The BBC spoke to working mothers about the challenges of a high-pressure career and making time for family.
Rescuers search for survivors of powerful Indonesia earthquake
📅 15.08.2026 👁️ 1
Rescuers search for survivors of powerful Indonesia earthquake
Officials say a rapid assessment into the impact of the earthquake that destroyed hundreds of buildings and killed 47 is under way.
Indonesia: Thousands displaced by deadly earthquake as rescue efforts continue
📅 15.08.2026 👁️ 0
Indonesia: Thousands displaced by deadly earthquake as rescue efforts continue
Hundreds of homes and public buildings have been severely damaged with at least 51 people killed.
Þór­dís Kol­brún fékk hlýjar mót­tökur - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Þór­dís Kol­brún fékk hlýjar mót­tökur - Vísir
Þórdís hefur nú stigið fyrsta formlega skrefið sem nýr sendiherra, segir í tilkynningu sendiráðsins, en hún hefur afhent afrit af trúnaðarbréfi sínu t...
Reform UK plan would overhaul welfare system with £50bn in savings
📅 15.08.2026 👁️ 0
Reform UK plan would overhaul welfare system with £50bn in savings
The party plans to release a full 50-page plan on Monday outlining their proposed changes were they to come to power.
Reform UK plans to overhaul welfare system to save £50bn
📅 15.08.2026 👁️ 1
Reform UK plans to overhaul welfare system to save £50bn
The party's proposed changes were they to come to power include a replacement for the disability payments system Pip.
Reform UK plans to overhaul welfare system to save £50bn and replace Pip
📅 15.08.2026 👁️ 1
Reform UK plans to overhaul welfare system to save £50bn and replace Pip
The party's proposed changes were they to come to power include a replacement for the disability payments system Pip.
Reform proposes £50bn welfare bill cut with changes to disability payments system Pip
📅 15.08.2026 👁️ 0
Reform proposes £50bn welfare bill cut with changes to disability payments system Pip
The party's proposed changes were they to come to power include a replacement for the disability payments system Pip.
European Athletics Championships 2026: Amy Hunt claims third gold as Dina Asher-Smith makes history
📅 15.08.2026 👁️ 1
European Athletics Championships 2026: Amy Hunt claims third gold as Dina Asher-Smith makes history
Amy Hunt claims the third gold medal of her bid for a historic quadruple and Dina Asher-Smith makes history as Great Britain win two relay golds at th...
Komast ekki á afskekkt svæði eftir jarðskjálftann
📅 15.08.2026 👁️ 1
Komast ekki á afskekkt svæði eftir jarðskjálftann
Tjónið er mikið og þúsundir hafa flúið heimili sín eftir að jarðskjálfti af stærðinni 7,7 reið yfir Indónesíu í gærkvöld.Skjálftinn átti upptök sín un...
Ríkis­stjórn Talíbana fagnar fimm árum - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Ríkis­stjórn Talíbana fagnar fimm árum - Vísir
Stjórn Talíbana hefur frá valdtöku verið harðlega gagnrýnd af mannréttinda- og hjálparsamtökum. Þá nýtur ríkisstjórnin ekki viðurkenningar Sameinuðu þ...
Fagnað á götum Kabúl - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Fagnað á götum Kabúl - Vísir
Stjórn Talíbana hefur frá valdtöku verið harðlega gagnrýnd af mannréttinda- og hjálparsamtökum. Þá nýtur ríkisstjórnin ekki viðurkenningar Sameinuðu þ...
„Ekki samráð þegar ákvörðun hefur verið tekin og svo á að keyra að henni“
📅 15.08.2026 👁️ 1
„Ekki samráð þegar ákvörðun hefur verið tekin og svo á að keyra að henni“
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir að kennarar verði að treysta því að innleiðingaráætlun ríkisstjórnarinnar varðandi breytin...
Hurricane Lala: Hawaii battles strong winds and rain as storm threat looms
📅 15.08.2026 👁️ 1
Hurricane Lala: Hawaii battles strong winds and rain as storm threat looms
If the storm makes landfall, it will be Hawaii's first direct hit by a hurricane in 34 years.
Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugar­nes­skóla - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugar­nes­skóla - Vísir
Tillagan var samþykkt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni. Guðný María Jóhannsdóttir formaður ráðsins segir breytinguna til þess að tryggja ...
„Ég held að allir faktorar séu betri núna en þeir voru síðast“
📅 15.08.2026 👁️ 1
„Ég held að allir faktorar séu betri núna en þeir voru síðast“
Sundkappinn Sigurgeir Svanbergsson hefur aðra atrennu að því að synda niður Lagarfljótið endilangt á miðnætti. Hann segir aðstæður margfalt betri nú e...
Morocco detains dozens of migrants trying to cross into Ceuta - reports
📅 15.08.2026 👁️ 1
Morocco detains dozens of migrants trying to cross into Ceuta - reports
Security had been stepped up amid suggestions on social media of a second mass crossing on Saturday.
Fjöldi öku­manna á von á kæru - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Fjöldi öku­manna á von á kæru - Vísir
Í rassíu lögreglunnar reyndust sex ökumenn yfir löglegum mörkum og eiga þeir allir von á kæru. Þá reyndust nokkrir ökumenn til viðbótar vera undir áhr...
Beitti konu sína heimilisofbeldi nóttina eftir að hann hlaut árs dóm
📅 15.08.2026 👁️ 1
Beitti konu sína heimilisofbeldi nóttina eftir að hann hlaut árs dóm
Landsréttur úrskurðaði karlmann í síðustu viku í áframhaldandi gæsluvarðhald til 27. ágúst vegna heimilisofbeldis sem hann er talinn hafa beitt sambýl...
Merkja gervigreindartónlistarmenn sérstaklega til að aðgreina þá frá mennskum listamönnum
📅 15.08.2026 👁️ 1
Merkja gervigreindartónlistarmenn sérstaklega til að aðgreina þá frá mennskum listamönnum
Stærsta tónlistarstreymisveita heims, Spotify, ætlar að búa til sérstakt merki til að aðgreina gervigreindartónlistarmenn frá mennsku tónlistarfólki. ...
Hefði ekkert átt að koma kennurum á óvart
📅 15.08.2026 👁️ 0
Hefði ekkert átt að koma kennurum á óvart
Breytingar á einkunnagjöf hefðu ekki átt að koma kennurum á óvart, segir Inga Sæland mennta og barnamálaráðherra sem gefur lítið fyrir fullyrðingar gr...