Að sögn lögreglu valt rútan eftir að hafa farið út af M3-hraðbrautinni, sem tengir höfuðborgina Búdapest við borgina Nyíregyháza í norðausturhluta landsins, um klukkan eitt í nótt að staðartíma. Bílstjórinn hefur verið handtekinn.
Samkvæmt ungverskum ríkismiðlum hafa slökkviliðsmenn nú bjargað 35 af þeim 57 farþegum og tveimur bílstjórum sem voru um borð.
Viðbragðsaðilar gerðu fyrst tilraun til að lyfta afturási rútunnar til að ná því fólki sem fast var undir henni, áður en kranar komu á vettvang til að lyfta ökutækinu í heild sinni. Rútan vegur um 24 tonn.
Sjúkraflutningaþjónusta Ungverjalands segir að einn hafi hlotið lífshættulega áverka, níu alvarlega áverka og 37 til viðbótar minniháttar áverka.