Rúmlega fimmtíu ára gamalt hitamet var slegið í Danmörku nú í hádeginu. Hiti mældist 36,6 stig á H.C. Andersen flugvellinum norður af Óðinsvéum. Það var svo slegið aftur stuttu síðar þegar hiti fór í 36,8 stig í Ødum á Austur-Jótlandi. Ekki er ólíklegt að það verði slegið um miðjan daginn en hægt er að fylgjast með hitabylgjunni og áhrifum hennar á vef danska ríkisútvarpsins. Fyrra metið var 36,4 stig en það var sett í Holstebro 10. ágúst 1975.
Hitabylgja hefur leikið íbúa víða í Evrópu grátt á síðustu dögum og hitamet fallið víða, en þau hafa flest verið fyrir júnímánuð, því mestur hiti mælist yfirleitt í júlí eða ágúst.
Hlýjasta júnínótt frá upphafi mælinga
Nú er um 34 stiga hita í Kaupmannahöfn en þar hefur verið mjög hlýtt allan sólarhringinn. Á eyjunni Fanø í Norðursjó undan ströndum Vestur-Jótlands fór hitinn lægst í tuttugu og tvö komma fimm stig í nótt. Þetta var því hlýjasta júnínótt í landinu frá upphafi mælinga 1874.