Salmonellusmit í níu Evrópulöndum eru rakin til pakkanúðla. 80 tilfelli hafa komið upp víða í Evrópu, þar af tíu meðal danskra barna.
Þetta kemur fram á vefsíðum Statens Serum Institut, Matvælastofnunar DTU og Matvælastofnunar Danmerkur. Danska ríkisútvarpið greinir frá.
Þrjú dönsku barnanna urðu svo veik að leggja þurfti þau inn á sjúkrahús.
Faraldurinn hefur komið upp í níu Evrópulöndum en það voru yfirvöld í Þýskalandi og Litáen sem ráku hann til neyslu á pakkanúðlum frá úkraínskum framleiðanda af tegundinni „Reeva“ með kjúklingabragði og krydduðu kjúklingabragði.
Borða pakkanúðlur beint úr pakkanum
Þær núðlusendingar sem þýsk og litháísk yfirvöld hafa rannsakað hafa ekki verið seldar í Danmörku.
„En niðurstöðurnar sýna að ein eða fleiri sendingar af núðlum frá úkraínska framleiðandanum hljóta að hafa verið á markaði í Danmörku, sem hafa valdið veikindum dönsku sjúklinganna,“ segir á Statens Serum Institut.
Smitin eru sérstaklega rakin til þeirrar þróunar að börn og ungmenni borði pakkanúðlur beint úr pakkanum án þess að elda þær. Pakkanúðlur eru yfirleitt ekki tilbúnar til neyslu beint úr pakkanum.