Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt - Vísir
Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt - Vísir
📅 2026-06-27 07:33:23👁️ 0 lesið
Á höfuðborgarsvæðinu eru 215 umferðarljós. Flest eru tengd miðlægri stýritölvu og stýrð með skynjurum sem greina umferð og kalla eftir grænu ljósi.
Þannig á græni tíminn að nýtast betur, ljós á sömu leið að vinna saman og hægt að veita Strætó og neyðarbílum forgang.
Ljósastýringin var tekin fyrir á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni. Þar kom fram að kerfið væri tæknilega komið nokkuð langt, en möguleikar þess ekki fullnýttir.
Gamall búnaður hægi á endurbótum.
Í kynningu borgarinnar kemur fram að 80 prósent ljósanna séu tengd stýritölvu, 85 prósent umferðarstýrð og um 2.100 skynjarar tengdir kerfinu.
Vilja gera þetta á fyrsta árinu
Friðjón Friðjónsson, varaformaður umhverfis- og skipulagsráðs, segir nýjan meirihluta ætla að setja málið í forgang.
„Við vorum auðvitað með það á verkefnalistanum hjá okkur að við ætlum að flýta innleiðingu snjallra ljósastýringa um alla borg og gera það á fyrsta árinu,“ segir Friðjón.
Friðjón Friðjónsson, varaformaður umhverfis- og skipulagsráðs, segir nýjan meirihluta vilja flýta innleiðingu snjallra ljósastýringa um alla borg á fyrsta ári sínu.Vilhelm
Hann segir verkefnið ekki aðeins snúast um nýja tækni heldur líka fjármagn og fólk.
„Við trúum því að þetta sé verkefni sem er hægt að ná á frekar skömmum tíma en til þess þurfum við auðvitað að forgangsraða peningum og starfsafli,“ segir hann.
Í minnisblaði sem kynnt var fyrir umhverfis- og skipulagsráði í vikunni kemur fram að 47 stjórnkassar í Reykjavík séu komnir yfir áætlaðan líftíma. Ekki er lengur hægt að panta varahluti í 92 stjórnkassa sem eru enn í rekstri og 58 þeirra eru ekki lengur sendanlegir í viðgerð.
Ef slíkur búnaður bilar alvarlega getur tekið þrjá til fjóra mánuði að fá nýjan stjórnkassa, auk nokkurra vikna í forritun og uppsetningu.
Höfðabakki dæmi um stöðuna
Höfðabakki er eitt skýrasta dæmið um endurnýjunarþörfina. Þar hafa framkvæmdir við umferðarljós og gönguleiðir staðið frá því í júní í fyrra.
Endurnýjuð eru umferðarljós á fimm gatnamótum; við Stórhöfða, Dvergshöfða, Bíldshöfða, Vesturlandsveg og Bæjarháls. Samhliða er verið að bæta gönguleiðir, breikka miðeyjar og laga lýsingu.
Í kynningu borgarinnar kemur fram að búnaðurinn á Höfðabakka hafi verið þrjátíu ára gamall.
Framkvæmdirnar hafa valdið töfum, sérstaklega við Höfðabakka og Bæjarháls, þar sem íbúar hafa kvartað undan löngum röðum á annatímum. Borgin segir breytingarnar hluta af stærri endurbótum sem eigi að bæta öryggi gangandi og hjólandi og gera ljósastýringuna sveigjanlegri.
Friðjón segir að árangurinn eigi að koma í ljós á næstu vikum.
„Það var verið að tengja núna á Höfðabakkanum í þessari viku síðustu ljósin þannig að við eigum að ná betra flæði og betri stýringu þar til dæmis núna á næstu vikum. Svo sjáum við bara til hvernig það reynist og ef það er ekki ásættanlegt fyrir okkur, þá förum við í frekari aðgerðir,“ segir Friðjón.
Að framkvæmdum loknum á að vera hægt að virkja rauntímastýringu á öllum ljósum á Höfðabakka milli Stórhöfða og Bæjarháls. Þar eiga radarskynjarar að lesa umferðarflæði og láta ljósin laga sig að stöðunni hverju sinni.
Reykjavík glími við meiri vanda en sambærilegar borgir
Friðjón segir markmiðið vera að bæta flæði fyrir alla vegfarendur, ekki aðeins bílaumferð.
„Það sem við erum að reyna að gera er að bæta flæði umferðar, hvernig svo sem það er, hvort sem það er gangandi, hjólandi eða akandi, þannig að fólk komist leiðar sinnar hraðar heldur en hingað til,“ segir hann.
Hann segir gögn sýna að Reykjavík glími við meiri umferðarvanda en sambærilegar borgir á Norðurlöndum og stærri borgir víða í Evrópu.
„Við viljum auðvitað bara komast undir það mark að 42 prósent af umferðinni er í vanda á hverjum degi,“ segir Friðjón.
Stúdentaráð Háskólans á Akureyri vill aukið og markvissara samstarf við kjörna fulltrúa í bænum. Ráðið óskar eftir virkari þátttöku pólitíkusa.Akureyr...
Hjálparstofnanir telja fyrstu 48 til 72 klukkustundirnar vera mikilvægan tímaramma til að ná fólki lifandi úr rústunum, þó að það geti lengst ef það h...
Útlit er fyrir nokkuð vætusamt veður um helgina. Í nótt og í fyrramálið gengur í stífa norðaustanátt með rigningu víða um land.Í dag er von á suðaustl...
Kynntust úti á lífinu Erla hafði hugsað mikið um Spánarferðina síðasta skólaárið í MK. Vinkonur hennar höfðu farið til Spánar eftir stúdentinn og henn...
Bandaríski þáttastjórnandinn Steven Crowder hefur tekið mál Sigurðar Gísla Snorrasonar, eða Sigga Bond, fyrir í þætti sínum og komið honum til varnar ...
Bandaríski þáttastjórnandinn Steven Crowder hefur tekið mál Sigurðar Gísla Snorrasonar, eða Sigga Bond, fyrir í þætti sínum og komið honum til varnar ...
Í frétt BBC um málið kemur fram að gerðar hafi verið árásir á eldflauga- og drónageymslur og ratsjárstöðvar við ströndina í gær, föstudag. Haft er eft...
Þjóðverjar eiga í erfiðleikum með að skrá nógu marga nýliða í her landsins til að mæta markmiðum sínum um herstyrk.„Ef við náum ekki markmiðum okkar m...
A five-year-old child is in a critical condition after being rescued from the swimming pool of a hotel in Puerto del Carmen, Lanzarote, yesterday afte...
Þá var einnig í Breiðholti eða Kópavogi tilkynnt um einn sem var að stunda sjálfsfróun í runna fyrir framan ungmenni. Lögregla fór á vettvang til að r...
Í dag er spáð suðaustan fimm til þrettán metrum á sekúndu, hvassast suðvestantil. Í veðurspá kemur fram að það verði suðaustlæg átt í dag og rigning u...
An international criminal gang accused of stealing perfume and tobacco from duty-free shops at airports across Europe, including Tenerife South Airpor...
Samfélagsleg ákvörðun að fækka sjálfsvígum Hvert sjálfsvíg kostar samfélagið um 500 milljónir, en lítið hefur verið lagt í forvarnir. Fyrs...
Hitamet var sett í Danmörku í nótt. Á eyjunni Fanø fór hitinn lægst í 22,5 stig. Þetta var því hlýjasta júnínótt í landinu frá upphafi mælinga 1874.Nó...
The Canary Islands are set for another largely sunny Saturday, with mostly clear skies, warm temperatures and strengthening north-easterly winds, acco...
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Sem fyrr er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttatían ...
Eignarhaldsfélag í eigu víetnamska viðskiptamannsins Quang Lé býður upp á flutningaþjónustu. Quang Lé rak fjölda veitingastaða í Reykjavík og hefur ve...
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöld eða nótt mann sem ógnaði börnum með hnífi í tilraun til að ræna hlaupahjóli. Í morgunpósti lögreglu ...
Ísrael og Líbanon hafa undirritað þríhliða rammasamkomulag ásamt Bandaríkjunum sem ætlað er að tryggja frið í Líbanon.Marco Rubio, utanríkisráðherra B...
Bandarísk stjórnvöld hafa veitt gervigreindarfyrirtækinu Anthropic heimild til þess að veita smáum hópi netöryggisfyrirtækja í Bandaríkjunum aðgang að...
Íranski byltingarvörðurinn sagði í kvöld að Íransher hefði svarað árásum Bandaríkjanna með því að gera árásir á bandarísk skotmörk við Persaflóa.„Ef á...
Deilan snýst um hvort Reykjavíkurborg sé raunverulegur eigandi svokallaðra grásleppuskúra við Ægissíðu. Fyrrum eigandi, Magnús Ingólfsson, afsalaði ei...
Sjálfstæðisflokkurinn stendur í flutningum þessa dagana úr Valhöll, sem hefur hýst starfsemi flokksins frá árinu 1975, í Kringluna.Stór geymsla er á n...
Fjölskylda í Oklahoma hefur kært skyndibitastaðinn Arby´s eftir að starfsmaður hrækti í mat þeirra og smitaði af herpes. Starfsmaðurinn, kona á fertug...
Bandaríkjaher gerði loftárásir á geymslusvæði fyrir flugskeyti og dróna auk strandratsjárstöðva í Íran. Stjórnvöld í Washington sökuðu Íran um árás á ...
Þjóðverji fékk fyrsta vinning og fær rúma 12,5 milljarða króna í vasann. Fimm miðaeigendur deildu svo öðrum vinningi og fær hver um sig 69 milljónir. ...
Félagið Ísland Palestína hefur vakið athygli fyrir nýja auglýsingu þar sem fólk er hvatt til að kaupa svokallaða Keffiyeh-klúta og vera „sýnilegt“ í s...
Eftir nokkurra ára hlé er aftur boðið upp á hornfirskan humar á Humarhátíð á Höfn, sem haldin er í 34. sinn um helgina.Í gærkvöld sungu Hornfirðingar ...
Í mörgum kjarasamningum sem undirritaðir voru árið 2024 er svokallað forsenduákvæði sem kveður á um að ef ársverðbólga mælist meiri en 4,7 prósent í á...
Það skiptir nánast engu máli í hvaða átt er litið í Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit. Það er alls staðar verið að byggja hús, laga vegi, græja og g...
Landsréttur hefur staðfest sýknu íslenska ríkisins í máli einstaklings sem taldi sér hafa verið haldið í sóttkví á tímum COVID-19 með ólögmætum hætti....
Roberto Burneo, yfirmaður kjörstjórnar í forsetakosningum í Perú, segir að endanleg yfirlýsing um úrslit kosninganna verði birt í síðasta lagi 3. júlí...