Þá var einnig í Breiðholti eða Kópavogi tilkynnt um einn sem var að stunda sjálfsfróun í runna fyrir framan ungmenni. Lögregla fór á vettvang til að rannsaka málið samkvæmt dagbók en ekki kemur fram hvort einstaklingurinn hafi fundist eða hvort hann hafi verið handtekinn.
Alls gistu átta í fangageymslum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í morgun. Það kemur fram í dagbók lögreglunnar. Þar kemur einnig fram að tilkynnt hafi verið um innbrot í geymslu í heimahúsi og að tilkynnt hafi verið um þjófnað á hjóli við heimahús. Sá sem reyndi að stela hjólinu hafi verið með vopn á sér og í annarlegu ástandi.
Þá óskuðu starfsmenn veitingastaðar eftir aðstoð vegna hóps sem var þar að borða. Allir nema einn yfirgáfu veitingastaðinn sem gat ekki borgað reikninginn. Fram kemur í dagbók að málið sé til rannsóknar hjá lögreglunni.
Þá var tilkynnt um hávaða í tveimur partíum og nokkrir ökumenn handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna víða um höfuðborgarsvæðið.