Nýr meirihluti í borginni hóf uppsagnir og tilfærslur með hávaða og yfirlýsingum í vikunni.Hildur borgarstjóri vill sýna harðlínunni í Sjálfstæðisflokknum að tiltekt sé hafin.Orðið á götunni er að hér sé meira um að ræða umbúðir en innihald. Mannréttindaskrifstofan er lögð niður eins og flestir hafa lagt til og bent á. Það eru því ekki mikil tíðindi en gæti sparað borginni 150 m.kr. útgjöld á ári þegar aðgerðin verður komin í gagnið. Að leggja niður samskipta- og upplýsingadeild sparar lítið ef verkefnin verða færð undir aðrar deildir borgarinnar – úr einum vasa í annan.
Orðið á götunni: Hildur reynir að róa harðlínuna í Sjálfstæðisflokknum