Maður var handtekinn í gærkvöld, á svæði lögreglustöðvar 3 (í Kópavogi eða Breiðholti), eftir að hafa ógnað börnum með hnífi og reynt að ræna þau hlaupahjóli. Maðurinn, sem var vistaður í fangageymslu, var í annarlegu ástandi.Frá þessu segir í dagbók lögreglu. Þar greinir einnig frá því að sama lögreglusvæði var tilkynnt um mann að stunda sjálfsfróun í runna fyrir framan ungmenni. Segir í dagbókinni að lögregla hafi farið á vettvang að rannsaka málið, en ekki greinir frekar frá málinu. Uppákoma á veitingastað
Skildu einn eftir með of háan reikning á veitingahúsi