Stúdentaráð Háskólans á Akureyri vill aukið og markvissara samstarf við kjörna fulltrúa í bænum. Ráðið óskar eftir virkari þátttöku pólitíkusa.
Akureyrarbær, Háskólinn á Akureyri og Stúdentaráð eru hagsmunaaðilar að Félagsstofnun Stúdenta við HA, eða FÉSTA. Akureyrarbær fer með formennsku í Félagsstofnun stúdenta við HA.
Stúdentaráð hefur óskað eftir því við bæinn og skólann að samstarfið verði aukið og heildstæðari stefna verði mótuð í kringum FÉSTA og þá uppbyggingu sem er fram undan.
Akureyrarbær fer með formennsku í FÉSTA og hefur Halla Margrét Tryggvadóttir setið þar á annan áratug fyrir hönd bæjarins. Stúdentaráð vill sterkari tengingu við pólitíkina en Halla er mannauðsstjóri Akureyrarbæjar.
„Ég held að það sé ofboðslega mikilvægt að fulltrúi Akureyrarbæjar hjá FÉSTA sé með skýrt pólitískt umboð,“ segir Aðalbjörn Jóhannsson, forseti Stúdentaráðs Háskólans á Akureyri.
Mikil uppbygging fyrirhuguð
Reisa á þrjá nýja stúdentagarða á Akureyri á vegum FÉSTA. Sömuleiðis er útlit fyrir að selja eigi einhverjar af eldri eignum félagsins, þá sérstaklega stærri íbúðirnar. Að mati stúdentaráðsins er þörf á að móta heildstæða sýn um framtíðina af hálfu bæjarins, háskólans og stúdentaráðsins. Bæði háskólinn og bærinn hafa tekið vel í erindið.
„Mér líst bara ofboðslega vel á það eins og áframhaldið verður og ákveðið var í bæjarráði að beina því til þessara þriggja hagaðila sem koma að FÉSTA að við í raun og veru setjumst niður, hagaðilarnir sjálfir, ekki bara stjórnin, heldur þeir aðilar sem eru með skýrasta umboðið frá sínum stofnunum eða félögum. Við setjumst niður og horfum til víðari stefnumótunar og starfsemi FÉSTA og framtíðaruppbyggingar.“