Úkraínski blaðamaðurinn Ihor Stakh á von á því að týna lífinu ef honum verður gert að snúa aftur til Úkraínu. „Það er stríð í landinu. Kannski verð ég handtekinn og sendur í herinn. Ég á ekki von á að lifa af ef ég þarf að fara þangað aftur. Á Íslandi líður mér eins og heima,“ segir hann í samtali við DV. Ihor kom til Íslands árið 2019 vegna ofsókna sem tengdust starfi hans sem blaðamaður og ári síðar fékk hann alþjóðlega vernd.
Ihor syndir undir íslenskum fána en gæti þurft að fara aftur til Úkraínu: „Nú bíð ég eftir svari“