Fyrirtæki Quang Lé komið í flutningabransann

Fyrirtæki Quang Lé komið í flutningabransann

Fyrirtæki Quang Lé komið í flutningabransann

Eignarhaldsfélag í eigu víetnamska viðskiptamannsins Quang Lé býður upp á flutningaþjónustu. Quang Lé rak fjölda veitingastaða í Reykjavík og hefur verið til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fyrir meint mansal. Fjöldi meintra brotaþola er meira en 30, segir Gunnar Axel Davíðsson lögreglumaður sem stýrir rannsókninni.

Fyrirtækið heitir NQ Moving og býður upp á þjónustu flutningsmanna sem hlaða og afferma flutningabíla. Hægt er að panta einn flutningsmann eða tvo og bifreið með.

Flutningsþjónustan er rekin í fyrirtækinu NQ fasteignir ehf. sem er í eigu Quang Lé. Þetta er fyrirtækið sem meðal annars átti Herkastalann svokallaða, hús hjálpræðishersins í Kirkjustræti í miðbæ Reykajvíkur. Upplýsingar um þetta koma fram á heimasíðu NQ Moving þar sem einnig er gefið upp símanúmer fyrirtækisins.

Fréttastofa reyndi að ná tali af Quang Lé með því að hringja í símanúmer flutningsfyrirtækisins. Starfsmaður sem svaraði sagði hann ekki vera við en staðfesti að fyrirtækið ræki flutningsþjónustu, eins og kemur fram á heimasíðunni. Þar er meðal annars hægt að óska eftir tilboði í flutninga.

Fréttastofa óskaði eftir því í símtali og tölvupósti að Quang Lé hefði samband til að ræða um starfsemi fyrirtækisins og aðstæður starfsmanna þess. Ekki var orðið við þeirra beiðni.

Stærsta mansalsrannsóknin

Staðan á rannsókninni á meintum brotum hans hefur nú staðið yfir í meira en tvö ár og það hyllir undir lok hennar. Gunnar Axel sagði um stöðu rannsóknarinnar í viðtali við fréttastofu fyrr í júní: „Þetta bara tekur tíma. [...] Það hyllir undir lokin. Einhvern tímann þarf allt að enda. [...] Á næstu mánuðum þá er markmiðið að senda þetta frá okkur til héraðssaksóknara.“

Rætt var við Gunnar Axel og fjallað var um stöðu rannsóknarinnar á máli Quang Lé í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í júní. Hann sagði meðal annars frá því að þetta væri stærsta mansalsrannsókn sem komið hefði upp á Íslandi. Hlusta má á þáttinn hér:

Benz-flutningabíll keyptur

Fréttastofa spurði starfsmanninn sem svaraði í símann hjá NQ Moving hvenær rekstur flutningafyrirtækisins hefði hafist. Hann svaraði því ekki.

Í yfirliti um ökutækjaeign NQ fasteigna kemur fram að fyrirtækið eigi í dag einn Benz Sprinter-flutningabíl sem keyptur var í lok apríl, fyrir rúmum tveimur mánuðum. Á heimasíðu fyrirtækisins kemur fram að hægt er að leigja einn flutningsmann og Benz Sprinter-bifreiðina til að sinna flutningum fyrir 14 þúsund krónur á tímann auk virðisaukaskatts. Tveir flutningsmenn og bifreið kosta 18 þúsund krónur á tímann auk virðisaukaskatts.

Á heimasíðu fyrirtækisins eru myndir af þremur flutningabílum sem eru merktir fyrirtækinu NQ Moving. Aðeins einn bíll er skráður á félagið.

Seldi Herkastalann á 865 milljónir

Þetta er eina fyrirtækið sem enn er í rekstri sem Quang Lé tengist í dag, sem stjórnarmaður og/eða framkvæmdastjóri og prókúruhafi. Sjö önnur fyrirtæki sem hann er stjórnarmaður í eða framkvæmdastjóri hafa verið úrskurðuð gjaldþrota. Þetta kemur fram í yfirliti yfir félagaþátttöku hans.

Þessi sex fyrirtæki voru úrskurðuð gjaldþrota vorið 2024 eftir að fjallað var um mál hans í fjölmiðlum og rannsókn hófst. Þetta eru fyrirtæki eins og Vietnam Restaurant ehf. og Wokon ehf.

Fyrirtækið NQ fasteignir ætti að vera ágætlega statt miðað við eignastöðu þess árið 2024. Þá átti fyrirtækið enn þá Herkastalann í Kirkjustræti sem metinn var á tæpan hálfan milljarð króna í ársreikningi. Fyrirtækið seldi Herkastalann fyrir 865 milljónir króna í fyrra, samkvæmt fréttum í fjölmiðlum.

Kostnaður getur fallið á ábyrgðarsjóð launa

Afleiðingarnar af meintum brotum Quang Lé síðustu ár hafa verið talsverðar. Meira en 30 meintir brotaþolar hafa farið í skýrslutöku hjá lögreglu og stór hluti þeirra hefur reynt að leita réttar síns gagnvart fyrirtækjum hans vegna þess að grunur er um að þeir hafi verið sviknir um laun og á þeim með brotið með öðrum hætti.

Verkalýðsfélagið Efling greindi frá því í vikunni að sigur hefði unnist í máli fyrrverandi starfsmanns fyrirtækis Quang Lé. Landsréttur kvað upp dóm um að starfsmaðurinn ætti að fá tæplega 20 milljónir króna úr þrotabúi veitingastaðarins Vietnam Restaurant vegna vangoldinna launa. Mál þessa manns hefur fordæmisgildi fyrir aðra starfsmenn sem Quang Lé er talinn hafa brotið gegn, segir Efling.

Orðrétt sagði í fréttatilkynningu Eflingar um dóminn: „Afar þýðingarmikill sigur vannst fyrir Landsrétti í gær þegar dómurinn úrskurðaði í máli manns sem unnið hafði hjá veitingastaðnum Vietnam restaurant áður en staðurinn var tekin til gjaldþrotaskipta. Viðurkenndi dómurinn meðal annars að launakröfur mannsins skyldu ná til yfirvinnu hans og sneri þar með við úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Er um gríðarlega mikið hagsmunamál að ræða, bæði fyrir umræddan mann, en einnig fyrir um á fjórða tug annarra starfsmanna, þar á meðal Eflingarfélaga, sem bíða úrlausnar sinna mála.”

Óvíst er hvort þrotabú fyrirtækis Quang Lé getur greitt þessum starfsmanni og öðrum þessa peninga til baka. Mögulegt er að á endanum þurfi þessi starfsmaður og aðrir að fá hluta til baka úr Ábyrgðarsjóði launa. Hvort Quang Lé og fyrirtæki hans greiddu peninga til Ábyrgðarsjóðs launa, eins og þau áttu að gera, meðan þau voru í rekstri liggur ekki fyrir. Hluti af kostnaðinum við þennan hluta starfsemi fyrirtækja Quang Lé gæti því á endanum fallið á sameiginlega sjóði í samfélaginu eins og Ábyrgðarsjóð launa.

#flutningabransann #fyrirtæki #komið #quang


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-06-27-fyrirtaeki-quang-le-komid-i-flutningabransann-479554

📰 Aðrar fréttir

International crime gang targeting Tenerife South Airport arrested in Spain and the UK
📅 27.06.2026 👁️ 0
International crime gang targeting Tenerife South Airport arrested in Spain and the UK
An international criminal gang accused of stealing perfume and tobacco from duty-free shops at airports across Europe, including Tenerife South Airpor...
Óttar Guðmundsson skrifar: Þingvallatónleikar
📅 27.06.2026 👁️ 0
Óttar Guðmundsson skrifar: Þingvallatónleikar
Mynd Hér á árum áður ferðaðist ég mikið til fjarlægra landa.
Samfélagsleg ákvörðun að fækka sjálfsvígum
📅 27.06.2026 👁️ 0
Samfélagsleg ákvörðun að fækka sjálfsvígum
Samfélagsleg ákvörðun að fækka sjálfsvígum Hvert sjálfs­víg kost­ar sam­fé­lag­ið um 500 millj­ón­ir, en lít­ið hef­ur ver­ið lagt í for­varn­ir. Fyrs...
Hlýjasta júnínótt í Danmörku að baki
📅 27.06.2026 👁️ 0
Hlýjasta júnínótt í Danmörku að baki
Hitamet var sett í Danmörku í nótt. Á eyjunni Fanø fór hitinn lægst í 22,5 stig. Þetta var því hlýjasta júnínótt í landinu frá upphafi mælinga 1874.Nó...
Fine weekend weather across the Canary Islands this Saturday
📅 27.06.2026 👁️ 0
Fine weekend weather across the Canary Islands this Saturday
The Canary Islands are set for another largely sunny Saturday, with mostly clear skies, warm temperatures and strengthening north-easterly winds, acco...
Frétta­tía vikunnar: Hval­veiðar, þvotta­björn og gjald­skylda - Vísir
📅 27.06.2026 👁️ 1
Frétta­tía vikunnar: Hval­veiðar, þvotta­björn og gjald­skylda - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Sem fyrr er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttatían ...
Ógnaði börnum með hnífi og reyndi að ræna hlaupahjóli
📅 27.06.2026 👁️ 1
Ógnaði börnum með hnífi og reyndi að ræna hlaupahjóli
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöld eða nótt mann sem ógnaði börnum með hnífi í tilraun til að ræna hlaupahjóli. Í morgunpósti lögreglu ...
Undirrituðu þríhliða rammasamkomulag um frið í Líbanon
📅 27.06.2026 👁️ 1
Undirrituðu þríhliða rammasamkomulag um frið í Líbanon
Ísrael og Líbanon hafa undirritað þríhliða rammasamkomulag ásamt Bandaríkjunum sem ætlað er að tryggja frið í Líbanon.Marco Rubio, utanríkisráðherra B...
World Cup 2026: How Cape Verde made history on their tournament debut
📅 27.06.2026 👁️ 2
World Cup 2026: How Cape Verde made history on their tournament debut
How has a group of islands with just 525,000 inhabitants made it to the knockout rounds of the World Cup?
Bandarísk netöryggisfyrirtæki fá aðgang að gervigreindarlíkani Anthropic
📅 27.06.2026 👁️ 1
Bandarísk netöryggisfyrirtæki fá aðgang að gervigreindarlíkani Anthropic
Bandarísk stjórnvöld hafa veitt gervigreindarfyrirtækinu Anthropic heimild til þess að veita smáum hópi netöryggisfyrirtækja í Bandaríkjunum aðgang að...
Harry and Meghan accept offer to stay at royal estate during UK visit
📅 27.06.2026 👁️ 1
Harry and Meghan accept offer to stay at royal estate during UK visit
The royal residence the pair will use has not been made public, but they will also be staying in private accommodation during the trip.
„Ofbeldi verður svarað með ofbeldi“ – Íran og Bandaríkin skiptast á árásum
📅 27.06.2026 👁️ 1
„Ofbeldi verður svarað með ofbeldi“ – Íran og Bandaríkin skiptast á árásum
Íranski byltingarvörðurinn sagði í kvöld að Íransher hefði svarað árásum Bandaríkjanna með því að gera árásir á bandarísk skotmörk við Persaflóa.„Ef á...
The reality of trying to complete the 2026 World Cup sticker book
📅 27.06.2026 👁️ 0
The reality of trying to complete the 2026 World Cup sticker book
From car park meet ups to Facebook groups, how families try to complete the set on a budget.
UK weather: Weekend to bring cooldown after record-breaking heatwave
📅 27.06.2026 👁️ 1
UK weather: Weekend to bring cooldown after record-breaking heatwave
The record-breaking heatwave is set to end with cooler and more unsettled weather by Sunday.
„Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ - Vísir
📅 27.06.2026 👁️ 1
„Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ - Vísir
Deilan snýst um hvort Reykjavíkurborg sé raunverulegur eigandi svokallaðra grásleppuskúra við Ægissíðu. Fyrrum eigandi, Magnús Ingólfsson, afsalaði ei...
How messages between two dads helped expose the largest NHS maternity scandal
📅 27.06.2026 👁️ 1
How messages between two dads helped expose the largest NHS maternity scandal
Among the hundreds of affected families in Nottingham, two sets of parents led the fight to get answers.
Home Office to introduce new asylum routes to UK
📅 26.06.2026 👁️ 1
Home Office to introduce new asylum routes to UK
The home secretary said "capped safe and legal" routes would help to restore confidence in the asylum system.
Mahmood seeks Canada-style asylum sponsorship route into UK
📅 26.06.2026 👁️ 1
Mahmood seeks Canada-style asylum sponsorship route into UK
The home secretary says "capped safe and legal" routes would help to restore confidence in the asylum system.
Mahmood announces new refugee sponsorship route into UK
📅 26.06.2026 👁️ 0
Mahmood announces new refugee sponsorship route into UK
The home secretary says "capped safe and legal" routes would help to restore confidence in the asylum system.
Postulín og hótelsilfur gekk kaupum og sölum í Valhöll í dag
📅 26.06.2026 👁️ 1
Postulín og hótelsilfur gekk kaupum og sölum í Valhöll í dag
Sjálfstæðisflokkurinn stendur í flutningum þessa dagana úr Valhöll, sem hefur hýst starfsemi flokksins frá árinu 1975, í Kringluna.Stór geymsla er á n...
Meloni and Trump: A very public Italy-US fallout that is proving very hard to fix
📅 26.06.2026 👁️ 2
Meloni and Trump: A very public Italy-US fallout that is proving very hard to fix
Italy's PM was not long ago being called the "Trump whisperer", but their relationship has gone from public attacks to personal insults.
Three unusual things about the King's tax bill
📅 26.06.2026 👁️ 1
Three unusual things about the King's tax bill
King Charles paid £12.9m in tax for 2024-2025 - here's what we know about his unique tax situation.
Starfsmaður skyndibitastaðar í vondum málum – Gerði ógeðslega hluti við matinn
📅 26.06.2026 👁️ 1
Starfsmaður skyndibitastaðar í vondum málum – Gerði ógeðslega hluti við matinn
Fjölskylda í Oklahoma hefur kært skyndibitastaðinn Arby´s eftir að starfsmaður hrækti í mat þeirra og smitaði af herpes. Starfsmaðurinn, kona á fertug...
Bandaríkin svara árás á skip með loftárásum á Íran
📅 26.06.2026 👁️ 1
Bandaríkin svara árás á skip með loftárásum á Íran
Bandaríkjaher gerði loftárásir á geymslusvæði fyrir flugskeyti og dróna auk strandratsjárstöðva í Íran. Stjórnvöld í Washington sökuðu Íran um árás á ...
Ís­lendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 1
Ís­lendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot - Vísir
Þjóðverji fékk fyrsta vinning og fær rúma 12,5 milljarða króna í vasann. Fimm miðaeigendur deildu svo öðrum vinningi og fær hver um sig 69 milljónir. ...
Ísland Palestína hvetur fólk til að vera „sýnilegt“ í sumar með Keffiyeh-klúta – bendir sérstaklega á ísraelska ferðamenn
📅 26.06.2026 👁️ 0
Ísland Palestína hvetur fólk til að vera „sýnilegt“ í sumar með Keffiyeh-klúta – bendir sérstaklega á ísraelska ferðamenn
Félagið Ísland Palestína hefur vakið athygli fyrir nýja auglýsingu þar sem fólk er hvatt til að kaupa svokallaða Keffiyeh-klúta og vera „sýnilegt“ í s...
Madonna was 'jealous of Kylie' - and other things we learned in her Graham Norton interview
📅 26.06.2026 👁️ 1
Madonna was 'jealous of Kylie' - and other things we learned in her Graham Norton interview
All the revelations from Madonna's chat with Graham Norton, including a big hint about Glastonbury.
Þurfa ekki að kalla humarhátíðina humarlausa
📅 26.06.2026 👁️ 1
Þurfa ekki að kalla humarhátíðina humarlausa
Eftir nokkurra ára hlé er aftur boðið upp á hornfirskan humar á Humarhátíð á Höfn, sem haldin er í 34. sinn um helgina.Í gærkvöld sungu Hornfirðingar ...
Erfitt fyrir launa­fólk að taka aftur mark á lof­orðum stjórn­valda og fyrir­tækja - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 1
Erfitt fyrir launa­fólk að taka aftur mark á lof­orðum stjórn­valda og fyrir­tækja - Vísir
Í mörgum kjarasamningum sem undirritaðir voru árið 2024 er svokallað forsenduákvæði sem kveður á um að ef ársverðbólga mælist meiri en 4,7 prósent í á...
Bible stories become required reading for Texas schools
📅 26.06.2026 👁️ 1
Bible stories become required reading for Texas schools
Critics say the new reading requirements infringe on religious freedoms and blur the separation of church and state.
Trump threatens 100% tariff on European digital services taxes
📅 26.06.2026 👁️ 1
Trump threatens 100% tariff on European digital services taxes
The US president says "Numerous European countries" have been discussing bringing in such a levy.
Hrafnagilshverfi stækkar ört - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 1
Hrafnagilshverfi stækkar ört - Vísir
Það skiptir nánast engu máli í hvaða átt er litið í Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit. Það er alls staðar verið að byggja hús, laga vegi, græja og g...
Venezuela earthquakes kill 920 people as families desperate for news
📅 26.06.2026 👁️ 1
Venezuela earthquakes kill 920 people as families desperate for news
Hundreds are still feared trapped under the rubble, as international rescue teams start to arrive.
Tories offer tax incentive as part of 50,000-reservist pledge
📅 26.06.2026 👁️ 1
Tories offer tax incentive as part of 50,000-reservist pledge
Labour accused the Conservatives of trying to "rewrite history" after making defence cuts while in power.
Ekki brotið gegn stjórnarskrá er einstaklingi var gert að sæta 14 daga sóttkví í faraldrinum
📅 26.06.2026 👁️ 1
Ekki brotið gegn stjórnarskrá er einstaklingi var gert að sæta 14 daga sóttkví í faraldrinum
Landsréttur hefur staðfest sýknu íslenska ríkisins í máli einstaklings sem taldi sér hafa verið haldið í sóttkví á tímum COVID-19 með ólögmætum hætti....
Endanleg úrslit forsetakosninga í Perú birt eigi síðar en 3. júlí
📅 26.06.2026 👁️ 1
Endanleg úrslit forsetakosninga í Perú birt eigi síðar en 3. júlí
Roberto Burneo, yfirmaður kjörstjórnar í forsetakosningum í Perú, segir að endanleg yfirlýsing um úrslit kosninganna verði birt í síðasta lagi 3. júlí...
UK search team joins Venezuela earthquake rescue effort
📅 26.06.2026 👁️ 0
UK search team joins Venezuela earthquake rescue effort
The 68-strong team left Brize Norton airbase on Friday onboard an RAF plane carrying aid supplies.
US conducts strikes on Iran after attack on cargo ship
📅 26.06.2026 👁️ 1
US conducts strikes on Iran after attack on cargo ship
US Central Command says it has struck missile and drone storage facilities and coastal radar positions.
US strikes Iran after attack on cargo ship
📅 26.06.2026 👁️ 1
US strikes Iran after attack on cargo ship
US Central Command says it has struck missile and drone storage facilities and coastal radar positions.
920 staðfest andlát eftir jarðskjálfta í Venesúela
📅 26.06.2026 👁️ 1
920 staðfest andlát eftir jarðskjálfta í Venesúela
Alls eru 920 látin eftir tvo stóra jarðskjálfta sem riðu yfir Venesúela á miðvikudagskvöld. Skjálftarnir voru af stærðinni 7,5 og 7,2 en aðeins 38 sek...
Áfengislagerum netverslana fjölgar í lagalegri óvissu
📅 26.06.2026 👁️ 1
Áfengislagerum netverslana fjölgar í lagalegri óvissu
Afgreiðsla fyrir netverslun með áfengi var opnuð á Fáskrúðsfirði í dag. Starfsemin er á gráu svæði og lögregla segist taka ábendingar um brot á einkal...
Ólafur kynntist fastagestunum á Hlemmi: „Undantekningalaust fólk sem bjó við djúpan harm“
📅 26.06.2026 👁️ 1
Ólafur kynntist fastagestunum á Hlemmi: „Undantekningalaust fólk sem bjó við djúpan harm“
„Þegar ég gerði heimildamynd um fastagestina á Hlemmi fyrir rúmum 20 árum kynntist ég þeim sem leituðu til Samhjálpar, sem var þá á Hverfisgötunni með...
Hægri öfgamaður dæmdur til lífstíðarfangelsis fyrir fjöldamorðin á jólamarkaði í Magdeburg
📅 26.06.2026 👁️ 1
Hægri öfgamaður dæmdur til lífstíðarfangelsis fyrir fjöldamorðin á jólamarkaði í Magdeburg
Öfgahægrimaður sem myrti 6 manns og slasaði um 300 á jólamarkaði í Magdeburg árið 2024 hefur verið dæmdur til lífstíðarfangelsis. Játning að hluta lá ...
Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot - MBL.IS
📅 26.06.2026 👁️ 1
Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot - MBL.IS
Heppinn Íslendingur var með 3. vinning EuroJackpot  í kvöld, en þrír deila honum á milli sín og fá þeir hver um sig tæpar 65 milljónir í sinn hlut. Hi...
Óttast þú höfnun í sambandi?
📅 26.06.2026 👁️ 1
Óttast þú höfnun í sambandi?
Nútíminn hefur hafið reglulegt samstarf við Aðalheiði Jensen sem mun birta hér myndbönd og efni um samskipti kynjanna, sambönd og lífið almennt. Óttas...
Kominn á toppinn - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 1
Kominn á toppinn - Vísir
Stefán segir að tónleikagestir geti átt von á heilmiklu fjöri og svo rólegri ballöðum í bland en hann endurtekur leikinn á morgun. Uppselt er á báða t...
„Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ - MBL.IS
📅 26.06.2026 👁️ 1
„Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ - MBL.IS
Svo virðist sem töluverð mengun komi frá fiskþurrkunarverksmiðju Samherja (áður Laugafiskur) í Þingeyjasveit. Íbúar á svæðinu segjast upplifa hljóðmen...
Örlítill meirihluti vill áframhald viðræðna - MBL.IS
📅 26.06.2026 👁️ 1
Örlítill meirihluti vill áframhald viðræðna - MBL.IS
Örlítill meirihluti þeirra sem taka afstöðu í nýjum þjóðarpúlsi Gallup ætlar að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við Evró...
Játar að hafa farið ranglega með trúnaðarupplýsingar Hvíta hússins
📅 26.06.2026 👁️ 1
Játar að hafa farið ranglega með trúnaðarupplýsingar Hvíta hússins
John Bolton, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta á fyrra kjörtímabili hans, hefur játað að hafa farið ranglega með leyn...
„Kjör hafa ekki rýrnað“ - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 1
„Kjör hafa ekki rýrnað“ - Vísir
Samkvæmt tilkynningu Hagstofunnar í morgun mælist ársverðbólga nú 5,2% en var 5,1% í maí. Er þetta þvert á spár greiningardeilda sem spáð höfðu hjöðnu...