Afgreiðsla fyrir netverslun með áfengi var opnuð á Fáskrúðsfirði í dag. Starfsemin er á gráu svæði og lögregla segist taka ábendingar um brot á einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis alvarlega.
ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, skoðar fyrirkomulag áfengissölu hérlendis eftir kvörtun frá Samtökum verslunar og þjónustu um að einkaleyfi ÁTVR samræmist ekki EES-samningnum. Í svari til ESA segir fjármálaráðuneytið skýrt að ÁTVR hafi einkaleyfi til smásölu áfengis innanlands. Einstaklingum sé heimilt að flytja inn áfengi til einkanota en öll smásala þriðja aðila eða milliganga sé bönnuð með lögum.
Það er vefverslunin Sante sem opnaði fyrir afhendingu af eigin lager á Fáskrúðsfirði í dag. Meðal þess sem áhöld hafa verið um er hvort lager netverslunar megi vera innanlands þar sem verslanirnar starfa undir þeim formerkjum að vera erlendar, í þeirri glufu sem heimild einstaklinga til að flytja inn áfengi til einkanota skapar.
Þá féll dómur í Héraðsdómi Reykjaness í apríl þar sem eigandi Smáríkisins var dæmdur til þess að greiða 100 þúsund króna sekt vegna stakrar sölu sem var talin brot gegn einkaleyfi ÁTVR. Því máli hefur verið áfrýjað til Landsréttar.
Arnar Sigurðsson, eigandi Sante sem opnaði á Fáskrúðsfirði í dag, segir þetta mál, sem er fordæmisgefandi, þurfa að hafa sinn lögformlega gang en gefur ekki mikið fyrir niðurstöðu héraðsdóms.
Lögregla segir öll brot á einkaleyfi ÁTVR tekin alvarlega
Afgreiðslustaður Sante á Fáskrúðsfirði er sá fyrsti sinnar tegundar á Austurlandi. Arnar á ekki von á því að tekið verði öðruvísi á starfseminni í öðru lögregluumdæmi.
Lögreglan á Austurlandi segir í svari við fyrirspurn fréttastofu að þeim hafi ekki verið kunnugt um að til stæði að opna afgreiðsluna á Fáskrúðsfirði fyrr en í dag. Allar ábendingar um smásölu áfengis af hendi annarra en ÁTVR verði teknar alvarlega.
Afhendingarlagerar netverslana með áfengi voru framan af á höfuðborgarsvæðinu. Síðustu misseri hafa slíkir þó verið opnaðir víðar á landsbyggðinni. Á Akureyri eru minnst þrír afgreiðslustaðir. Línan á milli netverslunar og verslunar getur þó verið óskýr vegna þess að hægt er að fá vöru afhenta um leið og hún er pöntuð. Hægt er að standa inni í verslun, slá pöntun inn í símann og fá hana afhenta um hæl.
Lögreglan á Norðurlandi eystra segir að hún hafi haft afskipti af þeim fyrirtækjum sem starfrækja á Akureyri afhendingarlagera áfengis sem selt er í netverslun. Það hafi hún til dæmis gert þegar opið hefur verið á helgidögum, vörum er stillt fram í glugga eða ef grunur er um að áfengi hafi verið afhent ungmennum.