Aðgerðasinninn Paul Watson tafðist á leiðinni til Íslands en Norðmenn kröfðu hann um að skipta um fána á skipinu. Er hann á leið til landsins til að mótmæla hvalveiðum og boðar Watson framhald á aðgerðum sínum 1986 þegar þáverandi samtök hans sökktu hvalveiðiskipum í Reykjavíkurhöfn.Watson segir í færslu á Facebook að skipið hans Bandero komi til Íslands um helgina. „Þetta sumar verður sögufrægt og [Kristján] Loftsson mun ekki fá sinn ólöglega kvóta af hval,“ segir hann. „Þetta stríð við Ísland hefur verið háð í fjóra áratugi. Nú er tími til að ljúka því.“
Sveinn Óskar bregst við Watson sem lofar sögulegu sumri